ALDA fasteignasala & Erling Proppé kynna vel staðsettar 5000 og 5500 fm sumarhúsalóðir við Brekkuheiði í vinsælu og vel skipulögðu sumarbústaðalandi í Brekkuskógi, Bláskógabyggð, 806 Selfossi. Lóðirnar eru í nánd við fallega náttúru og með einstöku útsýni til fjalla. Svæðið er afgirt með símahliði. Heitt og kalt vatn að lóðarmörkum gegn tengigjaldi.Byggingarheimildir: Á hverri lóð er heimilt að reisa eitt frístundahús/sumarhús og eitt aukahús. Heildarbyggingarmagn skal miðast við nýtingarhlutfallið 0.03. sem felur í sér að á lóð sem telur 5000 fm/0,5 ha má heildarbyggingarmagn vera 150 fm. Hámarksstærð aukahúss er 30 fm sem telst með í heildarbyggingarmagni lóðar. Ekki má byggja nær árbakka en 50 m.
- Sjá deiliskipulag frístundabyggðar við Brekkuheiði og Vallárveg ásamt breytingar á nýtingarhlutfalli:
Staðsetning:Frábær staðsetning í um 80 mín. akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Fallegar gönguleiðir í kring, m.a. að Brúarfossi. Í næsta nágrenni er að finna allar helstu náttúruperlur Suðurlands eins og Gullfoss og Geysi og stutt í alla helstu þjónustu s.s sundlaugar í Úthlíð, Laugarvatni, Borg í Grímsnesi og Reykholti. Nokkrir golfvellir eru í næsta nágrenni, m.a. við Geysi, Flúðir, Úthlíð, Öndverðanes og Kiðjaberg. Þá er hægt að kaupa veiðileyfi í mörgum vötnum í kring.
Lausar lóðir eru eftirfarandi:Brekkuheiði
- 19, 21, 23, 25, 27.
- 58, 60, 62, 64.
- 78, 80, 82, 84.
- 96, 98,100, 102,104.
Lóðarleigusamningur:Möguleiki er á því að gera langtíma lóðarleigusamning um lóðirnar í stað kaupa á þeim. Leigutaki öðlast þá rétt til þess að byggja á lóðunum í samræmi við skipulagsskilmála svæðisins en afla þarf samþykkis leigusala á byggingaverktaka.
-Árgjald landleigu er 136.743,- innheimt í júní ár hvert. Landleiga er undanþegin vsk.
-Grunngjald leigusamnings til 25 ára er 1.990.000,-
Öll verð eru bundin vísitölu neysluverðs og miðast ofangreind verð við 588,3 stig
Allar nánari upplýsingar veita:Aníta Olsen Jóhannesdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 615-1640 eða anita@aldafasteignasala.is
Erling Proppé, löggiltur fasteignasali, Erling@aldafasteignasala.is -----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.