Fasteignaleitin
Opið hús:14. júlí kl 16:30-17:00
Skráð 10. júlí 2026

Kópavogsbrún 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
130.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
122.900.000 kr.
Fermetraverð
944.658 kr./m2
Brunabótamat
85.400.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
23260391
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@landmark.is kynna:

Virkilega fallega og rúmgóða fjögurra herbergja 130,1 fm íbúð á jarðhæð með stæði í lokuðum bílakjallara við Kópavogsbrún 1 í Kópavogi.

Íbúðin er í vönduðu tveggja hæða staðsteyptu fjórbýli byggt árið 2013. Afgirt hellulögð verönd er út frá stofu sem snýr í suður og vestur með pallalokun að hluta. Gluggar á þrjá vegu í íbúð sem hleypir góðri náttúrulegri birtu inn. 


Íbúðin er 122,6 fm og geymslan er 7,5 fm, samtals 130,1 fm.
Séreign skiptist í:
forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu og sér geymslu staðsett í kjallara. 
Í sameign er: Hjóla- og vagnageymsla og ýmis sameiginleg rými, þ.á.m. dekkjageymsla. Fjögur sameiginleg bílastæði á lóð. 

✅ Falleg og rúmgóð íbúð í vönduðu fjögurra íbúða fjölbýlishúsi
✅ Stæði í bílageymslu og fjögur sameiginleg bílastæði á lóð
✅ Sérafnotareitur og afgirt verönd með pallalokun
✅ Þrjú svefnherbergi, rúmgott baðherbergi og sér þvottahús
✅ Frábær staðsetning í suðurhlíðum Kársness í Kópavogi


Nánari lýsing
Forstofa: Aflokað rými, flísar á gólfi og stór fataskápur. 
Alrými: Bjart og rúmgott með eldhúsi, stofu og borðstofu, harðparket á gólfi. 
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápa og skúffurými, bakarofn, keramik helluborð, háfur yfir úr burstuðu stáli og innbyggð uppþvottavél. Flisar á milli skápa og LED lýsing undir efri skápum. 
Svefnherbergin eru þrjú: Öll rúmgóð með fataskápum, harðparket á gólfum. 
Baðherbergi: Rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með bæði Walk inn sturtu og baðkari, upphengt salerni, baðinnrétting, vegghengdur skápur og handklæðaofn. Gólfhiti og góður gluggi með opnanlegu fagi. 
Þvottahús: Tengi fyrir þvottavél, efri skápa innrétting, hillur og vinnuborð með vaski, flísar á gólfi. 
Útisvæði: Sér afnotareitur út frá stofu. Afgirt hellulögð verönd sem snýr í suður og vestur með pallalokun úr öryggisgleri sem er um 85% opnanlegt. Eignin hefur sérafnotarétt af 71,6 fm, sunnan, vestan og norðanmegin við húsið, sjá teikningu.  
Geymsla: Sér geymsla í sameign. 
Bílakjallari: Rúmgott sér stæði og aðstaða fyrir bílaþrif. 

Staðsetning
Eignin er frábærlega vel staðsett í suðurhlíðum Kársness í Kópavogi, beint fyrir neðan Rútstún og Kópavogslaug, leikskóli er á næstu lóð og barnaskóli Kársness í hverfinu. Stutt í göngustíga við sjávarsíðuna. 

Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hallakur 4b
Opið hús:15. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hallakur 4b
Hallakur 4b
210 Garðabær
117.2 m2
Fjölbýlishús
312
767 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Vallartún 6 íbúð 202
Vallartún 6 íbúð 202
600 Akureyri
116.4 m2
Fjölbýlishús
413
687 þ.kr./m2
79.990.000 kr.
Skoða eignina Engihjalli 17
Opið hús:15. júlí kl 18:00-18:30
Skoða eignina Engihjalli 17
Engihjalli 17
200 Kópavogur
97.4 m2
Fjölbýlishús
413
666 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 1
Bílskúr
Skoða eignina Vetrarbraut 1
Vetrarbraut 1
815 Þorlákshöfn
143.9 m2
Parhús
413
507 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin