Fasteignaleitin
Skráð 7. nóv. 2023
Deila eign
Deila

Langimelur 31

Jörð/LóðHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær/Kjós-276
Verð
16.800.000 kr.
Fasteignamat
2.190.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Fasteignanúmer
2519255
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Matsstig
0 - Úthlutað
Remax kynnir til sölu lóðir í Hvammsvík:  Einstaklega falleg jörð sem staðsett er í Kjósarhreppi í mynni Hvalfjarðar.
Lóð nr. 31 er um 0,9 ha. að stærð. og situr hærra en lóð númer 1 þannig að útsýnið er óhindrað að mestu leiti.
Svæðið er frábært útivistarsvæði í einungis 45 mín. fjarlægð frá Reykjavík. Fjölbreytt landslag, fjöll, lækir og fossar að ógleymdri strandlengjunni.  Mikið fuglalíf er á svæðinu og hefur jörðin mikla sögu allt frá landnámsöld.   


Landeigandi mun sjá til þess að leggja veg að sumarhúsalóðum og sjá til þess að vegurinn verði tilbúinn fyrir flutninga snemma á nýju ári og lokafrágangur snemma sumars.
Gert er ráð fyrir að vegurinn verði með 80 cm þykku malarlagi í vegstæði og breidd í toppinn verði 4,5 m.   
Landeigandi verður í samskiptum við Kjósarveitur og RARIK en Kjósarveitur leggja hitaveitu ásamt ljósleiðara og RARIK rafmagn að lóðarmörkum. 
Landeigandi sér til þess að veituskurður meðfram vegi verði til staðar þar til gengið hefur verið frá öllum lögnum í skurðinn en heitt og kalt vatn ásamt rafmagni og ljósleiðara nýta skurðinn. 
Landeigandi mun setja upp hlið og girða af svæðið meðfram þjóðveginum í gegnum land Hvammsvíkur.
Flokkunarstöð á vegum sveitarfélagsins er í Raðahverfi í landi Háls sem er tæpa 2 km. frá hliði.

Kaupandi er upplýstur um að hann semur sjálfur um tengigjöld og notkun við RARIK vegna rafmagns og Kjósarveitur vegna heits vatns og ljósleiðara, seljandi er búinn að sækja um þessar tengingar en er ógreitt.
Landeigandi leggur kalt vatn að lóðarmörkum án innheimtu tengigjalds en kaupandi greiðir landeiganda fyrir kalt vatn kr. 30.000 á ári frá 1. janúar 2023. Vatnsgjaldið hækkar í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs, í fyrsta sinn 1. janúar 2024.
Kaupandi er upplýstur um að hann beri ábyrgð á lagningu allra lagna inni á sinni lóð. 
Kaupandi er jafnframt upplýstur um að samkvæmt deiliskipulagi skulu frístundarhúsin að jafnaði vera á einni hæð en með nýtanlegu risi og er hámarks byggingarmagn á hverri lóð 3% eða að hámarki 200 fm. á stærri lóðum.  Áhersla er á vönduð hús sem mynda heildstæða mynd og falla vel að umhverfinu.  Lóðareigandi ber sjálfur ábyrgð á að leggja innkeyrslu / bílastæði frá lóðamörkum  að sínu húsi.

Fráveita er á ábyrgð lóðareiganda í samræmi við leiðbeiningar um gerð og frágang rotþróa í sveitarfélaginu.  Framræsla er jafnframt á ábyrgð lóðareiganda.                               
Kaupandi skuldbindur sig til að leigja ekki hús á lóðinni í skammtímaleigu þ.e. í skemmri tíma en þrjá mánuði og verður kvöð þinglýst þess efnis.
Kaupandi skuldbindur sig til að klára byggingu húsa eigi síðar en tveimur árum eftir undirritun kaupsamnings og afhendingu eignar.
Kaupandi er upplýstur um að hann ásamt öðrum eigendum frístundahúsa á svæðinu eða félag á þeirra vegum sjái um viðhald og rekstur hliðs og vegar.
Kaupandi er upplýstur um að hann greiðir öll opinber gjöld og tryggingar vegna eignarinnar og árgjald í sumarhúsafélag þegar/ef það verður lagt á.

Nánari upplýsingar veitir:
Magnús Már Lúðvíksson // Sími: 699-2010 // maggi@remax.is
Löggiltur fasteignasali
RE/MAX senter // Skeifan 17, Reykjavík
Söluverðmat: Hér getur þú óskað eftir verðmati á eigninni þinni þér að kostnaðarlausu og án allra skuldbindinga 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.  4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Mynd af Magnús Már Lúðvíksson
Magnús Már Lúðvíksson
Löggiltur fasteignasali
GötuheitiPóstnr.m2Verð
276
16,8
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache