Fasteignaleitin
Opið hús:07. okt. kl 17:15-17:45
Skráð 5. okt. 2026

Baugakór 18

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
95.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
76.900.000 kr.
Fermetraverð
805.236 kr./m2
Brunabótamat
62.350.000 kr.
Byggt 2006
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
22820471
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir fasteignir og Brynjólfur Snorrason, lgfs., kynna bjarta og glæsilega þriggja herbergja íbúð á fjórðu (efstu) hæð ásamt stæði í lokuðum bílakjallara (B-01) í snyrtilegu lyftuhúsi, byggðu af Gunnari og Gylfa, við Baugakór 18 í Kópavogi.  Eignin er skráð 95,5 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 88,4 m2 og geymsla 7,1 m2, og samanstendur af anddyri, holi/skála, tveimur svefnherbergjum, fallegu eldhúsi, þvottahúsi, baðherbergi og rúmgóðri stofu með útgengi á 9,4 m2 suðursvalir. Falleg eign í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í matvöruverslanun, leik- og grunnskóla, Kórinn íþróttamiðstöð og fallega náttúru. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is.


Nánari lýsing.
Forstofa: Sérinngangur frá svalagangi, tvöfaldur fataskápur. Flísar á gólf.
Hol/skáli: Tengir saman aðrar vistarverur íbúðar. Parket á gólfi. 
Eldhús: Falleg lökkuð innrétting (GKS), mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og flísar á milli borðplötu og efri skápa. Á gólfi er parket og í eldhúsi er gluggi til norðurs.
Borð- og setustofa: Parket á gólfi. Stórir gluggar til suðurs og útgengi úr stofu á 9,4 fm suðursvalir. 
Hjónaherbergi: Rúmgott. Parket á gólfi, fataskápur. 
Barnaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Lökkuð eikarinnrétting með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu og sturtugleri, upphengt salerni, handklæðaofn.
Þvottahús/búr: Í sér rými inn af eldhúsi. Léttar hillur og hvít innrétting með góðu skápaplássi og þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Á gólfi eru flísar. 

Íbúð tilheyrir sér stæði í lokaðri bílageymslu (B-01) þar sem er tengi fyrir bílhleðslustöð auk þvottaaðstöðu, sérgeymsla (0108) og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 

Falleg eign í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í matvöruverslanun, leik- og grunnskóla, Kórinn íþróttamiðstöð og fallega náttúru. 

Allar nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is.


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hörðukór 3 - Pallur
Hörðukór 3 - Pallur
203 Kópavogur
93,7 m2
Fjölbýlishús
312
799 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Austurkór 2
Opið hús:06. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Austurkór 2
Austurkór 2
203 Kópavogur
109,4 m2
Fjölbýlishús
413
877 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 (109)
Bílastæði
Opið hús:07. okt. kl 12:30-13:00
Vetrarbraut 2 (109)
210 Garðabær
104,2 m2
Fjölbýlishús
413
940 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 (107)
Bílastæði
Opið hús:07. okt. kl 12:30-13:00
Vetrarbraut 2 (107)
210 Garðabær
99,7 m2
Fjölbýlishús
312
942 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin