Mjög stílhreina, fallega og nýlega 42,3 m² stúdíóíbúð við Hallgerðargötu 1A, íbúð 102. Um er að ræða nútímalega íbúð í fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2023. Íbúðin skiptist í forstofu með góðum fataskáp, afmarkað svefnrými, gott og bjart alrými með eldhúsi, baðherbergi og svölum. Eldhúsið er vel útbúið með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Með íbúðinni fylgir rúmgóð geymsla í kjallara, um 3,7 m² að stærð. Þar er hátt til lofts og góð aðstaða í sameign fyrir vagna og hjól.
Eignin er í útleigu í dag - möguleiki er að yfirtaka leigusamning.
Hafliði Halldórsson, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, veitir allar nánari upplýsingar í síma 767-5555 eða í gegnum netfangið Haflidi@fstorg.is.
Nánari lýsing: Forstofa er með góðum fataskáp. Eldhúsinnrétting er á einum vegg, sérsmíðuð og vel útfærð með AEG spanhelluborði, blástursofni, innfelldri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp. Svefnrýmið er stúkað af inn af alrýminu og þar eru góðir fataskápar. Baðherbergið er flísalagt á gólfi og að hluta til á veggjum. Þar er snyrtileg innrétting með góðu skápaplássi og vaski, upphengt salerni ásamt innréttingu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þá er einnig handklæðaofn. Gólfefni íbúðarinnar er harðparket og flísar á baðherbergi.
Hægt er að leigja bílastæði í upphitaðri bílageymslu gegn gjaldi. Þar er einnig aðgengi að bílastæðum með rafhleðslu fyrir rafbíla.
Fallegt sameiginlegt útisvæði er á milli bygginganna, með leiktækjum fyrir börn. Staðsetningin er góð, en í næsta nágrenni eru fjölbreytt útivistar- og náttúrusvæði, bæði í Laugarnesi og við Laugardal. Sundlaug, líkamsrækt, gönguleiðir og öll helsta þjónusta eru í góðu göngufæri.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
23/01/2023
4.960.000 kr.
47.900.000 kr.
42.3 m2
1.132.387 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.