Opið hús:04. feb. kl 12:00-13:00
Skráð 30. jan. 2026

Strandgata 69

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
111 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.800.000 kr.
Fermetraverð
718.919 kr./m2
Fasteignamat
81.250.000 kr.
Brunabótamat
57.450.000 kr.
Mynd af Karl Lúðvíksson
Karl Lúðvíksson
Sölustjóri - Íbúðareignir
Byggt 1951
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2079488
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Endurnýjað 2018
Frárennslislagnir
Skipt um 2019
Gluggar / Gler
Nýlega skipt um glugga og gler að hluta
Þak
Endurnýjað 2023
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
CROISETTE - KNIGHT FRANK kynnir í einkasölu bjarta og fallega neðri sérhæð á jarðhæð í tvíbýli með glæsilegu útsýni yfir Flensborgarhöfn og fallega fjörðinn á Strandgötu í Hafnarfirði. Eignin er samtals 111 fm2 og samanstendur af forstofu, eldhúsi/borðstofu, stofu með fallegu útsýni yfir fjörðin, þremur góðum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi, geymslu. Lóðin er 993,8 fm og sameiginlegum garður allt í kringum húsið. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT STRAX.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3-D


Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið inn um sérinngang inn í snyrtilega forstofu með fatahengi. Flísalagt með hita í gólfi. 
Eldhús/borðstofa: Bjart með góðum gluggum og fallegu útsýni yfir höfnina. Innrétting er dökk og háglans hvítt, rúmgóð með tengi fyrir uppþvottavél. Parketlagt með hita í gólfi.
Stofa: Björt og opin stofa með fallegu útsýni. Parketlagt með hita í gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með sér salerni. Parketlagt með hita í gólfi. Gengið út í garð að norðanverðu.
Baðherbergi hjóna: Inn af hjónaherbergi er sér salerni. Upphengt salerni ásamt tengi fyrir sturtu. 
Herbergi I: Gott skápapláss. Parketlagt með hita í gólfi.
Herbergi II: Gott skápapláss. Parketlagt með hita í gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum. Rúmgott baðkar og sturta. Góð snyrtiaðstaða með innréttingu, handlaug og speglaskáp. Upphengt salerni og hiti í gólfi.
Geymsla: Er inn af forstofu undir stigatröppum, björt með glugga. Ágætar hillur og flísalagt með hita í gólfi. 
Þvottahús: Er inn af forstofu. Er með glugga og góðum snúrum/hillum. Flísalagt með hita í gólfi.

Endurbætur/viðhald á síðustu 10 árum:
 
Frá fyrri eiganda:
2013 Skipt um klóak og leitt út í nýjan hreinsibrunn.
2018 eldhús endurnýjað og stækkað. ný eldhúsinnrétting. Bæði baðherbergi endurgerð frá grunni. Nýjum klóak og neyslulögnum bætt við. Nýr gluggi í stóra baðherbergi.Á A-útvegg og út af kyndiklefa á N-vegg var einangrun og klæðning endurnýjuð með ull og gifsi þegar nýtt dren var lagt í kringum húsið. Gólfhitakerfi lagt í alla íbúðina. Nýtt rafmagn lagt í alla íbúðina
2019 Skólp og vatnslagnir lagðar útí götu
2020 Rennur endurnýjaðar. Nýr glugg á baðherbergi.

Núverandi eigandi:
2021
Niðurtekið loft í stofu og á gangi með innbyggðri lýsingu. Nýjir gólflistar á alla íbúðina
2023 Nýtt þak ásamt fjarlægingu á þakkkanti og nýr smíðaður. Nýjir gluggar og svalahurð. Sprunguviðgerðir og inndæling ásamt múrverki fyrir ofan glugga

Íbúðin er mjög vel staðsett í hjarta Hafnarfjarðar og mun í framtíðinni vera mitt í fallegu nýju umhverfi Flensborgarhafnar. Strandgatan í Hafnarfirði hefur frá upphafi verið ein mikilvægasta gata bæjarins. Siglingaklúbburinn er með starfsemi beint fyrir framan húsið þar sem börnin æfa sig í firðinum.  Við Strandgötuna eru mörg af elstu húsum bæjarins og við hamarinn stendur Fjörukráin, en það hús er næstelsta hús Hafnarfjarðar, byggt árið 1841. Stutt í alla þjónustu, skóla, leikskóla, heilsugæslu, verslanir & veitingastaði. Þægileg aðkoma úr öllum áttum. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/01/202144.950.000 kr.45.000.000 kr.111 m2405.405 kr.
26/02/201835.150.000 kr.39.500.000 kr.111 m2355.855 kr.
13/09/201219.700.000 kr.15.800.000 kr.111 m2142.342 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laufvangur 2
Opið hús:03. feb. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Laufvangur 2
Laufvangur 2
220 Hafnarfjörður
121.5 m2
Fjölbýlishús
413
658 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Skipalón 3
Opið hús:05. feb. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Skipalón 3
Skipalón 3
220 Hafnarfjörður
74.3 m2
Fjölbýlishús
211
1075 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Skipalón 3
Opið hús:05. feb. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Skipalón 3
Skipalón 3
220 Hafnarfjörður
75.7 m2
Fjölbýlishús
211
1026 þ.kr./m2
77.700.000 kr.
Skoða eignina Breiðvangur 13
Skoða eignina Breiðvangur 13
Breiðvangur 13
220 Hafnarfjörður
127.2 m2
Fjölbýlishús
514
620 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin