Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Hellisbraut 28

EinbýlishúsVesturland/Reykhólahreppur-380
274.8 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
44.900.000 kr.
Fermetraverð
163.392 kr./m2
Brunabótamat
116.300.000 kr.
Byggt 2001
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22855731
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Reisulegt 274,8 fm einbýlishús á þremur hæðum með 2ja herbergja aukaíbúð og bílskúr við Hellisgötu 28 á Reykhólum.  Húsið stendur í jaðri byggðarinnar með óhindruðu útsýni yfir Breiðafjörðinn. Miklir möguleikar.


Eignin er skrá 274,8 fm skv HMS og fyrsta hæðin steypt en hinar tvær úr timbri.

Nánari lýsing aðalhæðar (96,2 fm): Parket á gólfi fyrir utan forstofu og baðherbergi þar sem eru flísar. Komið inn í flísalagða forstofu með fataskáp.  Rúmgott alrými með samliggjandi stofu og borðstofu með parket á gólfi, útgengt út á stóra, afgirta timburverönd með útsýni til sjós. Eldhús er með u laga innréttingu, bakaraofni í vinnuhæð, keramik helluborði, tengi fyrir uppþvottavél og góðum borðkrók. Tvö svefnherbergi, annað þeirra með fataherbergi innaf. Baðherbergi er mjög rúmgott með flísum á gólfi, innréttingu, hornbaðkari og handklæðaofni.
 
Nánari lýsing efri hæðar (96,8 fm): Timburstigi úr forstofu á aðalhæð upp á efri hæð hússins, nýlegt harðparket á efri hæð. Þrjú svefnherbergi, þar af er eitt herbergið mjög stór með fataskápum Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtuklefa og opnanlegum glugga. Opið þvottahús með nýlegri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur með skápum undir. Útgengt út á svalir.
 
Nánari lýsing kjallara (82,5 fm): Steyptur stigi á milli hæða. Lítið salerni með salerni og vaski. Geymsla. Bílskúr með flísum á gólfi að hluta með rafdrifinni hurð og gönguhurð. Úr bílskúr er gengið inn í 2ja herbergja íbúð sem telur eitt svefnherbergi með parket á gólfi, stofa og eldhús í opnu alrými með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél í eldhúsi og baðherbergi með baðkari.

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@aldirfasteignir.is


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (9)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 29
1.jpg
Skoða eignina Vorbraut 29
Vorbraut 29
210 Garðabær
269,3 m2
Raðhús
635
850 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 37
1.jpg
Skoða eignina Vorbraut 37
Vorbraut 37
210 Garðabær
252,3 m2
Raðhús
634
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Kársnesbraut 92
Skoða eignina Kársnesbraut 92
Kársnesbraut 92
200 Kópavogur
264 m2
Einbýlishús
924
663 þ.kr./m2
175.000.000 kr.
Skoða eignina Langabrekka 26
Bílskúr
Skoða eignina Langabrekka 26
Langabrekka 26
200 Kópavogur
261,8 m2
Einbýlishús
634
725 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin