Fasteignaleitin
Opið hús:14. apríl kl 17:30-18:00
Skráð 9. apríl 2025
Deila eign
Deila

Sóleyjarimi 13

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
143.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
110.000.000 kr.
Fermetraverð
768.156 kr./m2
Fasteignamat
90.950.000 kr.
Brunabótamat
72.200.000 kr.
Mynd af Darri Örn Hilmarsson
Darri Örn Hilmarsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2015
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2354049
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Svalir
þrennar svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega björt og fallega þriggja herbergja endaíbúð á annari hæð við Sóleyjarima í Grafarvogi. Eignin er skráð 143,2 fm og skiptist í tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi með sturtu, fataherbergi, sér þvottahús, rúmgott alrými með opnu eldhúsi, stofu og borðstofu, anddyri og geymslu í kjallara. Eignin er með sér smíðuðum innréttingum, gólfhita, sér inngang og þrennum svölum. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is

Nánari lýsing:
Gengið er upp upphitaðan stiga að utanverðu og inn um sér inngang. Komið er inn í forstofu með fallegum ljósum flísum á gólfi innbyggðum fataskáp sem nær alveg upp í loft. Inn af forstofunni er rúmgott baðherbergi með "walk in" sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og ljósri innréttingu með handlaug. Alrýmið er mjög rúmgott en þar er sjónvarpsstofa, borðstofa, setustofa og eldhús. Í eldhúsinu er hvít sérsmíðuð innrétting frá Hegas og steinn á borðum. Inn í innréttingu er bakaraofn, innfelldur ísskápur, nýtt spanhelluborð og gufugleypir. Þvottahúsið er mjög rúmgott með ljósri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Stofan er virkilega rúmgóð og rúmar vel sjónvarpsstofu, setustofu, borðstofu. Útgengt er út á svalir til vesturs/suð-vesturs og aðrar svalir til norðurs frá stofu. Hjónaherbergið er með fataherbergi og sér baðherbergi með "walk in sturtu", upphengdu salerni, handklæðaofni og ljósri innréttingu með handlaug. Frá hjónaherbergi er útgengt út á svalir til austurs. Annað rúmgott svefnherbergi er beint á móti hjónaherbergi en þar eru innbyggðir fataskápar sem ná alveg upp í loft. Í eigninni er gólfhiti í öllum rýmum og allar innréttingar eru sérsmíðaðar. Íbúðinni fylgir 7,9 fm sérgeymsla í sameign. Einnig er rúmgóð hjóla- og vagnageymsla í sameign. Alls eru 10 íbúðir í húsinu en fyrir framan húsið eru 20 bílastæði sem tilheyra þessum íbúðum. Búið er að setja upp rafmagnshleðslustöðvar í nokkur stæði. 

Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/12/201644.150.000 kr.57.500.000 kr.143.2 m2401.536 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sóleyjarimi 13
Opið hús:14. apríl kl 17:30-18:00
Skoða eignina Sóleyjarimi 13
Sóleyjarimi 13
112 Reykjavík
141.5 m2
Fjölbýlishús
3
777 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5A - íb. 0306
Bílastæði
Jöfursbás 5A - íb. 0306
112 Reykjavík
118.7 m2
Fjölbýlishús
32
993 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5D - íb. 403
Bílastæði
Jöfursbás 5D - íb. 403
112 Reykjavík
115.2 m2
Fjölbýlishús
312
997 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5D - íb. 401
Bílastæði
Jöfursbás 5D - íb. 401
112 Reykjavík
125.8 m2
Fjölbýlishús
322
897 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin