Fasteignaleitin
Skráð 8. feb. 2026

Valsheiði 5

EinbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
258.7 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
139.000.000 kr.
Fermetraverð
537.302 kr./m2
Fasteignamat
131.850.000 kr.
Brunabótamat
128.250.000 kr.
Mynd af Gunnar Biering Agnarsson
Gunnar Biering Agnarsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2282096
Landnúmer
200196
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað um nein vandamál
Raflagnir
Ekki vitað um nein vandamál
Frárennslislagnir
Ekki vitað um nein vandamál
Gluggar / Gler
Skoða
Þak
Ekki vitað um nein vandamál
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samkvæmt skráningu eru þaksvalir (23,3fm) hluti af eigninni. Þær hafa aldrei verið reistar.
Gallar
Eignin er skráð fullgerð en matstig er 8 (tekið í notkun) þar sem svalir hafa ekki verið reistar.
Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu Valsheiði 5, 810 Hveragerði.
Fallegt einbýlishús með fjórum til fimm svefnherbergjum.
Eignin er samtals 258,7 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands; þar af er íbúðin 204 m² og bílskúrinn 54,7 m².
Eignin telur forstofu, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, fjögur til fimm svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrting, þvottahús, geymsla/búr, geymsluloft og bílskúr.
Timburverönd í U-laga skjólgóðu rými. Hellulögð verönd er einnig til staðar, varin með skjólveggjum að hluta. 
Virkilega falleg eign á eftirsóttum stað. 


Sjá staðsetningu hér.

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is


Nánari lýsing eignar:
Forstofa
: Fjórfaldur fataskápur, flísar á gólfi.
Forstofuherbergi: Parket á gólfi, gluggi til austur að götu. Skráð geymsla en getur nýst sem svefnherbergi, vinnu- eða skrifstofa.
Alrými: Eldhús, stofa og borðstofa. Útgengt á skjólgóðan pall.
Eldhús: Er opið og bjart, innrétting með miklu skápaplássi, uppþvottavél og ofn í vinnuhæð, helluborð, veggháfur, gert ráð fyrir amerískum ísskáp, stór eldhúseyja með plássi fyrir sex manns að sitja við. Gólfsíðir gluggar. Flísar á gólfi.
Borðstofa: Er í sama bjarta rýminu, útgengt út á skjólgóða timburverönd um tvöfalda rennihurð. Gólfsíðir gluggar. Parket á gólfi.
Stofa: Er einnig í sama bjarta rýminu þó þar séu gluggar ekki eins fyrirferðamiklir. Parket á gólfi.
Svefnherbergjagangur: L-laga og liggur frá alrými og myndar með því 'U' utan um sólpall en tvennar dyr eru á ganginum út á pallinn. Við ganginn er búr, gesta wc, þvottahús, baðherbergi og fjögur svefnherbergi. Flísar á gólfi
Búr: Staðsett fyrir aftan eldhúsinnréttingu, við upphaf svefnherbergisgangs.
Gestasnyrting: Upphengt wc, handlaugarinnrétting, spegill, flísar á gólfi.
Þvottahús: Rúmgóð innrétting, flísar milli skápa, gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skolvaskur, útgengt í bakgarð og innangengt í bílskúr. Lúga upp á geymsluloft, flísar á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott rými, flísalagt í hólf og gólf, er innrétting með tveim handlaugum, upphengt wc, sturtuklefi og handklæðaofn.
Svefnherbergi I-II-III eru öll mjög rúmgóð (13 - 18 m² að stærð), tvöfaldir fataskápar í þeim öllum, parket á gólfi. Gluggar snúa út í baklóð.
Hjónaherbergi: Glæsilegt herbergi, skráð 19,4 m², mikill fataskápur með speglahurð í miðju, parketlagt og gluggar á tveimur hliðum.
Bílskúr: Rúmgóður, skráður 54,7 m², milliloft yfir hluta af honum.
Bílaplan fyrir framan hús og skúr rúmar þrjá til fjóra bíla.

Gólfefni eignarinnar er parket og flísar.
Gólfhiti er í allri eigninni.

Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/02/201963.100.000 kr.65.000.000 kr.258.7 m2251.256 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brattakinn 23
Skoða eignina Brattakinn 23
Brattakinn 23
220 Hafnarfjörður
210.3 m2
Einbýlishús
533
584 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Réttarholt 6
Bílskúr
Skoða eignina Réttarholt 6
Réttarholt 6
310 Borgarnes
204.8 m2
Einbýlishús
614
427 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Skoða eignina Hverafold 29
Opið hús:10. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hverafold 29
Hverafold 29
112 Reykjavík
183.3 m2
Fjölbýlishús
513
709 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbrún 13
Skoða eignina Hraunbrún 13
Hraunbrún 13
220 Hafnarfjörður
220.2 m2
Fjölbýlishús
626
681 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin