SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *FRÁBÆRT FJÖLSKYLDUHÚS Í SPÆNSKUM BÆ* *STÓR OG SÓLRÍK LÓÐ ÁSAMT ÞAKSVÖLUM MEÐ ÚTSÝNI* *GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI, STUTT Í GOLF OG STRÖND* *SAMEIGINLEG SUNDLAUG*Þessi sjarmerandi eign í Los Montesinos býður upp á mikla möguleika. Hún skiptist í 3 svefnherbergi, 1 baðherbergi, stofu, borðstofu og eldhús. Frá stofu er gengið á yfirbyggðar svalir og þaðan upp á stórar þaksvalir með fallegu útsýni. Lóðin er 151 fm endalóð og hægt að leggja bíl á lóðinni. Eignin er frábærlega staðsett í spænskum bæ með verslanir og veitingastaði í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, í síma 0034 615112869 eða berta@spanareignir.isGóðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. La Marquesa, og La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15-20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Los Montesinos er skemmtilegur ekta spænskur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi hefðbundnu spænsku bæjarlífi, Fiestum og ýmsu skemmtilegu, verslunum og veitingastöðum. Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. Ca. 10 mín. akstur á tvo góða golfvelli, La Finca og La Marquesa, og ótal fleiri góðir golfvellir eru í innan við 20 mín akstursleið frá Los Montesinos. Ciudad Quesada og Dona Pepa, eru stutt frá, vinsælir og líflegir bæir sem iða af mannlífi allt árið.
Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans.
219.000 evrur (ISK 31.700.000) Verð miðað við 1EVRA = ISK145
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: bílastæði, þakverönd, air con, sundlaug, stór lóð,
Svæði: Costa Blanca, Los Montesinos, La Herrada,