LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Vel skipulögð og björt fimm herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og sérafnotareit ásamt bílastæði í bílakjallara í nýlegu lyftuhúsi við Áshamar í Hafnarfirði. Ný Ásvallarbraut veitir greiða samgönguleið til og frá svæðinu.
Sérinngangur - fjögur svefnherbergi - bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð - sérafnotaréttur - gólfhiti - gólfsíðir gluggar. Eignin er vel staðsett í húsinu.
Birt stærð skv. HMS: Íbúðin er 100 fm, eign merkt :01-07, geymslan er 2,6 fm merkt 00-40 , samtals: 102,6 fm að stærð. Eigninni fylgir einnig stæði í bílakjallara, merkt: 07-B14, og er það ekki inn í fermetratölu eignar.
Eignaskiptayfirlýsing: Eignin er íbúð á 1. hæð. Henni fylgir geymsla í kjallara, 00-40 og sérafnotaflötur sem er 22,9 fm. Bílakjallari: Allar eignir eru með sér rafmagnsmæli.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í
anddyri / forstofu með innbyggðum fataskáp. Á hægri hönd frá forstofu / anddyri er parketlagður
svefnherbergisgangur þar sem eru
þrjú svefnherbergi og eru þau öll með fataskáp. Frá hjónaherbergi er unnt að ganga út á hellulagða verönd. Flísalagt
baðherberg í hólf og gólf, hvít innrétting, Walk-in sturta, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús með fallegri innréttingu frá AXIS og vönduðum tækjum frá AEG, innbyggð uppþvottavél, ofn í vinnuhæð. Eldhús er opið inn í
bjarta stofu með útgengi á sérafnotareit.
Herbergi innaf stofunni og er það með fataskáp. Íbúðinni fylgir
sérgeymsla í sameign ásamt aðgangi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymlsu.
Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum.
Staðsetning hverfisins er frábær með tilliti til útivistar, til dæmis Ástjörn, Helgafelli og Hvaleyarvatn. Stutt í íþróttasvæði Hauka á Ásvöllum.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma
690 3111 eða
andri@landmark.isUmsagnir viðskiptavina HÉRFylgdu mér á FacebookFylgdu mér á InstagramPantaðu
FRÍTT söluverðmat á
www.frittsoluverdmat.is Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat