Fasteignaleitin
Skráð 24. sept. 2026

Ásvellir 9 - 104

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
102.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
926.758 kr./m2
Fasteignamat
2.376.750.000 kr.
Mynd af Sigríður Rut Stanleysdóttir
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Jarðhæð af 4
Garður
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2517747_51
Landnúmer
229960
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
verönd
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir : Vandaðar nýjar 2-4ra herbergja íbúðir að Ásvöllum 3-9,  þar sem allt byggingarefnir uppfyllir ströngustu umhverfiskröfur.  Íbúðirnar á Ásvöllum eru Svansvottaðar samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. Það þýðir að allt byggingarefni sem sett er í bygginguna hefur verið samþykkt og uppfyllir kröfur Svansins. sem tryggir hágæða innivist, frábæra hljóðvist og fullkomið loftskiptakerfi sem tryggir hreint loft og hámarks heilbrigði.
Glæsileg 102,4fm þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í nýju 24 íbúða fjölbýlishúsi ásamt stæði í bílgeymslu. Geymsla íbúðar er skráð : 11,9fm. Eignin skiptst í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, geymslu og stæði í bílageymslu. Ásvellir 9 er nýtt 4 hæða fjölbýlishús sem er einstaklega vel staðsett við Haukaheimilið og Ásvallalaug. Stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Traustur byggingaaðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. 
Sjá nánar inná ÁSVELLIR
Allar nánari upplýsingar og skoðun veitir Sigríður Rut löggiltur fasteignasali í gsm : 699-4610 eða siggarut@fstorg.is og Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / Helgi@fstorg.is 


NÁNARI LÝSING : 
Forstofa góðum fataskáp frá GKS.
 Eldhús með fallegri innréttingu frá GKS. Helluborð frá BORA og önnur heimilistæki er frá AEG. Borðplöturn eru plastlagðar í gráum lit Kæli- og frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu. Eldhús er opið við stofu og borðstofu. 
Þvottahús / Búr er innaf eldhús með innrétting frá GKS.
 Stofa og borðstofa eru rúmgóð með útgengi út á svalir. 
Hjónaherbergi með fataherbergi innaf, skápar frá GKS.
Svefnherbergi með skápum frá GKS. 
Baðherbergi með walk in sturtu, innréttingu við vask, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum. Í kjallara er stæði í lokaðri bílageymsla og góð sér geymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Fallegur frágangur. 

Ásvellir 3-19 eru 7 byggingar og 9 stigahús með samtengdum bílakjallara neðanjarðar undir garði á milli húsanna. Ein innkeyrsla er í bílakjallarann og þar eru samtals 101 bílastæði ásamt sameiginlegu bílaþvottastæði. Auk bílastæða í bílakjallara eru 60 bílastæði á lóð.  Húsin eru staðsteypt, einangruð og klædd að utan með álklæðningu og sementsbundnum plötum á jarðhæð. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Ásvellir skiptast í 9 stiga- og lyftuhús sem öll hafa aðgengi að bílakjallaranum úr sameign. Á jarðhæð eru aðalinngangar fyrir hvert stigahús fyrir sig. Á fyrstu hæð fylgja sérafnotareitir en á efri hæðum eru svalir sem fylgja öllum íbúðum. Í húsinu eru tveggja til fimm herbergja íbúðir. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna, en með flísum á baðherbergjum og þvottahúsum. Með flestum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu. Sameign og lóð skilast fullfrágengin. Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða gilda ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna. Allt auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar. Laus búnaður o.þ.h. sem sýndur er á teikningum en er ekki talinn upp í skilalýsingu fylgir ekki. 

Íbúðirnar á Ásvöllum eru Svansvottaðar samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. Það þýðir að allt byggingarefni sem sett er í bygginguna hefur verið samþykkt og uppfyllir kröfur Svansins.  Meginmarkmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og þeirra sem nota bygginguna eftir að hún er tekin í notkun. Kröfurnar ná einnig til gæðastjórnunar á verkstað, en skýr stýring á umhverfisþáttum og gæðastjórnun helst oft í hendur. Nánari upplýsingar um Svansvottun má finna á heimasíðu umhverfismerkisins Svansins https://svanurinn.is/voruflokkar/byggingar
Gæta skal að því byggingarefni sem keypt eru inn í íbúðina uppfylli þessar kröfur Svansins eins og t.d. gólfefni, undirlag, málning og kítti. Byggingarefni sem er umhverfisvottað og er með einhvern af þessum stimplum á umbúðunum uppfyllir sjálfkrafa kröfur Svansins. Ef ekki er stimpill til staðar er hægt að spyrja sölumenn hvort efnið sé leyfilegt til notkunar í Svansvottuð hús. 


2. Frágangur íbúða
2.1 Veggir Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikursteinum, grófpússaðir og sandspartlaðir. Veggir á baðherbergjum eru flísalagðir með Sunstone Freya 60x60 cm flísum frá Parka. Veggir í þvottahúsum eru málaðir með Svansvottaðri votrýmismálningu. Aðrir veggir eru málaðir með Svansvottaðri málningu
2.2 Gólf Íbúðir verða afhentar Sunstone Freya 60x60 cm flísum frá Parka á gólfi á baðherbergjum og þvottahúsum. Önnur gólf eru afhent án gólfefna.  
2.3 Loft Steypt loft eru slípuð, sandspörtluð og máluð með Svansvottaðri málningu. Loft á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með Svansvottaðri votrýmismálningu. Í loftum kunna að vera stokkar til að hylja loftræsilagnir.
2.4 Hurðir Inngangshurðir íbúða eru EI30-CS yfirfelldar spónlagðar hurðir. Hurðir innan íbúða eru sléttar yfirfelldar í hvítum lit. Rennihurðir eru í hvítum lit. Allar hurðir innan íbúða eru keyptar í Parka. 1
2.5 Rafmagn og lýsing Ásvellir 3-9 SKILALÝSING  Raflagnir eru fullfrágengnar samkvæmt teikningum. Tenglar og rofar í íbúðum eru að tegundinni Merten háglans fyrir utan tengla og rofa í eldhúsi þar eru þeir svartir af gerð ION V1/J1. Innan íbúða eru LED loftljós í baðherbergjum, þvottahúsum og innfelld LED ljós í loftum á völdum stöðum. Íbúðir eru búnar mynddyrasíma af gerð bticino. Ljós á völdum stöðum eru búin dimmingu með Plejd-snjallkubbum, hægt er að stjórna þeim ljósum með símanum ef sótt er Plejd-appið í snjallsíma. Kóði til að tengjast kerfinu er í rafmagnstöflu.
2.6 Eldhús Eldhúsinnréttingar koma frá Trésmiðju GKS.  Skápar eru úr slitsterku melaminefni í viðar útliti í bland við einlitt melaminefni. Borðplötur eru plastlagðar í gráum lit. Allar lamir og skúffubrautir eru með mjúklokun. Skápar eru almennt með höldum fyrir utan efri skápa sem eru með þrýstiopnun. Lýsing er undir efri skápum, sorpflokkunarkerfi er í vaskaskáp og hnífaparabakki í skúffu.  Helluborð kemur frá BORA og er keypt frá Trésmiðju GKS, önnur heimilistæki eru frá AEG og eru keypt hjá Ormsson. Kæli- og frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð.  Blöndunartæki eru frá Nobili og vaskur er frá Schock en bæði er keypt frá Trésmiðju GKS.
2.7 Fataskápar Fataskápar koma frá Trésmiðju GKS og eru úr einlitu melaminefni. Lamir og skúffubrautir eru með mjúklokun.
2.8 Baðherbergi Baðinnréttingar koma frá Trésmiðju GKS. Neðri skápur er skúffuskápur, lagður með einlitu melaminefni. Efri skápur er speglaskápur með lýsingu fyrir ofan.  Vaskur er hvítur frá Alape með easy-clean húð sem heldur óhreinindum frá og er auðvelt að þrífa, blöndunartæki er krómlitað frá Mora.  Blöndunartæki í sturtu eru krómlituð frá Hansa, handsturtuhaus er að tegundinni SKINNY frá Almar og sturtuhaus er krómlitaður að tegundinni OKI frá Bossini. Klósettskál er hvít að tegundinni Selnova frá Geberit með hvítri klósettsetu með hæglokun.
2.9 Þvottahús Innréttingar í þvottahúsum koma frá Trésmiðju GKS.  Fyrir neðan þvottavél og þurrkara eru skúffuskápar og balagrind fyrir innan. Í efri skápi er loftræstisamstæða íbúðarinnar.
2.10 Hitakerfi Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita, auk þess er handklæðaofn á baðherbergjum innan íbúða. Sameignir eru kynntar með ofnakerfi skv. teikningum. Gólfhita er stýrt með þráðlausum hitanemum á vegg rýmis, gæta skal að skipta þarf um rafhlöður í þráðlausum hitanemum öðru hvoru. Ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða vatnshitastýrðir lokar á því. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir fylgja frágegnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.  
2.11 Loftræsing Loftræsikerfi með varmaendurvinnslu er í hverri íbúð, nauðsynlegt er að skipta um síu reglulega skv. leiðbeiningum framleiðanda. Hefðbundið loftræsikerfi er í geymslum og bílakjallara.
3.Frágangur utanhúss
3.1 




 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Arnarhraun 11
3D Sýn
Opið hús:28. sept. kl 18:00-18:30
Skoða eignina Arnarhraun 11
Arnarhraun 11
220 Hafnarfjörður
98.3 m2
Fjölbýlishús
413
813 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 7 íb. 0301
Bílastæði
Ásvellir 7 íb. 0301
221 Hafnarfjörður
110.9 m2
Fjölbýlishús
413
946 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 7 íb. 0301
Ásvellir 7 íb. 0301
221 Hafnarfjörður
110.9 m2
Fjölbýlishús
413
946 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 7 íb. 0203
Bílastæði
Ásvellir 7 íb. 0203
221 Hafnarfjörður
118.8 m2
Fjölbýlishús
413
917 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin