Fasteignaleitin
Skráð 10. júní 2026

Indriðastaðahlíð 120

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
183.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
110.800.000 kr.
Brunabótamat
110.300.000 kr.
Mynd af Gunnlaugur Hrannar Jónsson
Gunnlaugur Hrannar Jónsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Eignalisti
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2306542
Landnúmer
211147
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Virkilega vandað heilsárshús með stórri eignarlóð, miklu útsýni, bílskúr, gestasvítu, mynstursteyptu bílastæði og stórri verönd allt um kring.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Húsið stendur mjög hátt í landi Indriðastaða, í lokuðu hverfi með aðgangsstýringu og er staðsett fremst í Skorradal.

Um er að ræða sumarhús/einbýlishús sem stendur á eignarlóð og er nýtt í dag til heilsársbúsetu.

Eignin samanstendur af tveimur eignarlóðum (9.755 fm alls) með u.þ.b. 200 fm af húsakosti, yfir 200 fm af verönd og er útsýni um Skorradal, vestur á Snæfellsjökul, upp í Skarðsheiðina og að Skessuhorni. 

Renna tveir fallegir lækir um lóðirnar og mikið berjaland allt um kring.

Húsið er kynnt með hitaveitu, gólfhita og er heitur pottur á verönd.

Fjögur svefnherbergi, stórt eldhús, tvær stofur, tvö baðherbergi, sér þvottahús og mikið útsýni úr stofu og hátt til lofts í alrými.

Harðviður er í gluggum og hurðum, innfelld lýsing, sérsmíðaðar innréttingar, timburverönd er öll úr harðviði og hvergi verið til sparað við byggingu á þessari vönduðu eign.

Nýlega var bætt við aukastofu sem öll er úr harðvið og gleri, falleg kamína er þar og útsýni óviðjafnanlegt.

Eign sem hentar fjársterkum aðilum, hvort heldur sem er sem sumarhús eða til fastrar búsetu sem heilsárshús.

Nánari lýsing - Aðalhús:
Forstofa - með flísum á gólfi og fataskápur ásamt góðu fatahengi.
Þvottahús og geymsla - er inn af forstofunni, flísar á gólfi, skolvaskur, innrétting og skápar.
Baðherbergi - með flísum á gólfi og veggjum, góð innrétting með vask og hirslum, stór spegill, baðkar með sturtu, upphengt salerni og svo er gluggi með opnanlegu fagi.
Hjónaherbergið - er sýnu stærst, góðir fataskápar, parket á gólfi og horngluggi með fallegu útsýni.
Hin tvö herbergin - eru rúmgóð, með góðum gluggum, parketi á gólfi og fataskápum
Eldhús - er með fallegri innréttingu með góðu geymsluplássi, granít á borðum, innbyggð uppþvottavél, pláss fyrir einfaldan ísskáp, vandað parket á gólfi og aukin lofthæð.
Borðstofan - er í beinu framhaldi af eldhúsinu, rúmgóð, rúmar stórt borðstofuborð, aukin lofthæð og vandað parket á gólfi.
Stofan - er rúmgóð, björt, hátt til lofts og vandað parket á gólfi.
Sólstofan - eða stækkunin sem er nýjasta viðbótin við húsið, vandaðar flísar á gólfi , gólfsíðir gluggar á öllum hliðum og fallega hönnuð kamína.

Nánari lýsing - Gestavíta og bílskúr:
Gengið er inn í gestasvítuna af veröndinni  og er hún innst í bílskúrshúsinu.
Miðrýmið virkar eins og forstofa, stór fataskápur, innrétting með vaski og spegill, flísar á gólfi.
Stórt svefnherbergi með góðum glugga og vönduðu parketi á gólfi.
Gestasnyrting með upphengdu salerfni og flísar á hluta veggja og gólfi.
Tvöföld stór sturta er í sér rými, flísar á veggjum og gólfi, nýtist vel fyrir notkun á heita pottinum á verönd.
Bílskúrinn sjálfur er mjög rúmgóður, með máluðu gólfi, góðum hirslum og með rafdrifinni hurð.
Rafhleðslustöð fyrir Teslubíl er á framhlið bílskúrs sem fylgir með.

Nánari lýsing - Útisvæði: 
Virkilega stór verönd úr harðviði er í kringum aðalhúsið og tengir saman gestahús/bílskúr ásamt bílastæðinu.
Göngustígar í allar áttir til útvistar, stutt að fara jafnt á fjöll sem niður að vatni.
Bílastæði er mjög rúmgott, mynstursteypt og lagt fyrir snjóbræðslu undir það.
Tveir bæjarlækir á lóðunum og mikið berjaland.
Einstök eign í alla staði og upplögð bæði sem sumarparadís fyrir stóra fjölskyldu sem og til heilsársbúsetu fyrir þá sem vilja búa í sveitinni.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/11/20081.375.000 kr.25.000.000 kr.183.7 m2136.091 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2008
65 m2
Fasteignanúmer
2306542
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
35.100.000 kr.

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórsstígur 27
Skoða eignina Þórsstígur 27
Þórsstígur 27
805 Selfoss
165.6 m2
Sumarhús
534
881 þ.kr./m2
145.900.000 kr.
Skoða eignina Vatnsendahlíð 218
Vatnsendahlíð 218
311 Borgarnes
82 m2
Sumarhús
413
1035 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Stórarjóður (Húsafell) 11
Stórarjóður (Húsafell) 11
320 Reykholt í Borgarfirði
43.3 m2
Sumarhús
32
621 þ.kr./m2
26.900.000 kr.
Skoða eignina Kiðjaberg 131
Skoða eignina Kiðjaberg 131
Kiðjaberg 131
805 Selfoss
163.9 m2
Sumarhús
423
900 þ.kr./m2
147.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin