Fasteignaleitin
Skráð 25. nóv. 2026

Tryggvabraut 24 íbúð 301

Atvinnuhúsn.Norðurland/Akureyri-600
58.6 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
42.000.000 kr.
Fermetraverð
716.724 kr./m2
Brunabótamat
27.700.000 kr.
Byggt 1973
3. hæð
Pallur
Sturtuklefi
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25117461
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir fasteignir kynnir í einkasölu:
Tryggvabraut 24 íbúð 301

Glæsileg 58,6 fm endaíbúð á efstuhæð í nýlega uppgerðu húsi við Tryggvabraut / Furuvelli á Akureyri.  Frábær fyrir skíðafrí.  Sameiginleg verönd með bekkjum við inngang og önnur sameiginleg verönd á austurhlið með heitum pottum, grilli og setkrók. Upphitaður skíðaskápur fylgir íbúðinni.  Tilvalið fyrir fyrirtæki, starfsmannafélög eða einstaklinga.  Ríkulega útbúin og öll húsgögn og húsbúnaður fylgir. Íbúð með starfsleyfi.  Mjög góð einkunn og umsagnir á booking.com. Góð bókunarstaða og bókanir geta fylgt með.
Íbúðin skiptist í:  Anddyri með fatahengi, svefnherbergi með góðum fataskáp, baðherbergi meðsturtu, rúmgóða stofu með svefnsófa og opnu eldhúsi. Eldhús er með fallegri innréttingu og vel búið tækjum eins og ísskáp, bakaraofni, uppþvottavél, helluborði og háfi. Stofan og borðstofan eru í opnu rými með parketi á gólfi. Svefnherbergið er með parketi á gólfi. Baðherbergið er flísalagt með sturtu með glervegg, upphengdu salerni og fallegri innréttingu.  Í húsnæðinu er rúmgóð lyfta og þvottavél og þurrkari í sameign.  Á eigninni hvílir VSK. kvöð sem hægt er að greiða upp ef ekki á að nýta íbúðina í virðisaukaskattskylda starfsemi

Nánari upplýsingar veitir:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 eða th@aldirfasteignir.is
Sveinn Eyland lögg. fast.

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álhella 32D
Skoða eignina Álhella 32D
Álhella 32D
221 Hafnarfjörður
50 m2
Atvinnuhúsn.
432 þ.kr./m2
21.600.000 kr.
Skoða eignina Álhella 32
Skoða eignina Álhella 32
Álhella 32
221 Hafnarfjörður
50 m2
Atvinnuhúsn.
432 þ.kr./m2
21.600.000 kr.
Skoða eignina Álhella 11A
Skoða eignina Álhella 11A
Álhella 11A
221 Hafnarfjörður
67,5 m2
Atvinnuhúsn.
532 þ.kr./m2
35.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturbakki 11, bil 0103
Vesturbakki 11, bil 0103
815 Þorlákshöfn
72 m2
Atvinnuhúsn.
346 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin