Fasteignaleitin
Skráð 27. apríl 2026

Laugavegur 170 íb604 Heklureitur

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
200.8 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
279.000.000 kr.
Fermetraverð
1.389.442 kr./m2
Fasteignamat
3.486.600.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2536485
Landnúmer
234932
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
06
Hæðir í húsi
7
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd og svalir
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir: Nýjar íbúðir á Heklureit að Laugavegur 170 í Reykjavík. Um er að ræða glæsilega íbúð á 6. hæð, 4-5 herbergja með þrennar svalir, hjónasvítu o.fl. og tvö bílastæði í bílakjallara.  Íbúð merkt 604. Einstök íbúð fyrir þá sem njóta þess að búa til mat því að innan af eldhúsinu er búr þar sem er vaskur og gott pláss sem má innrétta t.d. fyrir stærri vínskáp og auka ísskáp. Rúmgóð íbúð þar sem bæði svefnherbergin eru með baðherbergi inn af herberginu (ensuite). Einstaklega glæsileg útsýnisíbúð búin gæða innréttingum og tækjum. Tvö einkabílastæði fylgja í bílageymslu, merkt: B03, og B04. Góð geymsla um 21,8fm fylgir með íbúðinni ásamt tveimur stæðum í bílageymslu. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Einarsdóttir, fasteignasali í GSM: 856-5858 eða margret@fstorg.is

Sjá hér nánar heimasíða fyrir Heklureitinn
Sækja hér söluyfirlit 


Nánari upplýsingar: Í eldhúsi er eyja, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini, sérframleiddur frá Santamargherita á Ítalíu. Vönduð tæki frá Siemens, sem koma úr StudioLine gerðinni, en hún býður uppá úrval glæsilegra tækja sem gera eldamennskuna sérlega þægilega og ánægjuríka. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða baðherbergi eru valin með tilliti til gæða og endingar.
Hafstudio og Studio Homestead koma að hönnun innréttinga og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Kaupendur hafa tækifæri til að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergi, komi þeir tímanlega að borði. 
Íbúðirnar á efri hæðum, hafa einstakt útsýni til fjalla og yfir borgina. 
Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. 
Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga. 
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut. 

Skipulag: Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174  sem verður byggt í áföngum. Fyrstu húsin sem nú er í byggingu eru Laugavegur 168 og Laugavegur 170.
Skipulagið tekur mið af því að hámarka  gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni.
Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún

Hönnun: Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu.

Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða.
Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*
Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir, fasteignasali í GSM: 822-2225 eða thora@fstorg.is
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2536485
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Fasteignanúmer
2536485
Númer hæðar
B0
Númer eignar
02

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshamar 22 (101)
Bílastæði
Áshamar 22 (101)
221 Hafnarfjörður
108.5 m2
Fjölbýlishús
423
742 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 307 Hlutd.lán
Bílastæði
Hringhamar 35, íb. 307 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
99.6 m2
Fjölbýlishús
413
808 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 208
Bílastæði
Hringhamar 35, íb. 208
221 Hafnarfjörður
117.9 m2
Fjölbýlishús
413
720 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 207 Hlutd.lán
Bílastæði
Hringhamar 35, íb. 207 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
98.5 m2
Fjölbýlishús
413
817 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin