Fasteignaleitin
Skráð 12. okt. 2026

Furuás 25

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
249.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.900.000 kr.
Fermetraverð
641.653 kr./m2
Brunabótamat
130.350.000 kr.
Byggt 2016
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
23301034
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum með tveimur sjálfstæðum íbúðum í Áslandinu í Hafnarfirði.
Um er að ræða einstaklega áhugaverða eign fyrir þá sem vilja hafa tvær kynslóðir saman, en þó með hvor sína sjálfstæðu íbúðina. Sér inngangur er í íbúð á neðri hæðinni og önnur rúmgóð íbúð er á efri hæðinni með sér inngangi. Eignin er vel staðsett á vinsælum og fjölskylduvænum stað.
Heildarstærð eignarinnar er 249,2 fm, þar af er efri hæðin 81,2 fm, neðri hæðin 127,8 fm og bílskúrinn 40,2 fm.

Efri hæð – rúmgóð 2ja herbergja íbúð

Forstofa með flísum á gólfi og góðum skápum. Björt og rúmgóð stofa með útgangi á svalir þar sem notið er glæsilegs og óskerts útsýnis.
Eldhúsið er með ljósri innréttingu, helluborði, steinborðplötu og aðstöðu fyrir uppþvottavél. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, sturtu og glugga.
Svefnherbergið er rúmgott, með skápum og útgangi út á verönd. Gólfefni eru harðparket og flísar. 

Neðri hæð – rúmgóð 4ra herbergja íbúð
Sér inngangur er í íbúðina. Komið er inn í forstofu og þaðan í hol/gang. Rúmgóð stofa og eldhús með góðri innréttingu, aðstöðu fyrir uppþvottavél, ofni í vinnuhæð og steinborðplötu. Úr eldhúsi er útgangur út á lóð.
Íbúðin býður upp á þrjú svefnherbergi. Þvottahús er með innréttingu og baðherbergi er rúmgott, flísalagt, með bæði sturtu og baðkari ásamt innréttingu. Þá er stór geymsla innan íbúðar sem er hægt að nýta í margt annað en geymslu.
Gólfefni eru vínylparket

Bílskúrinn:  Er með epoxygólfi, vatni, rafmagni, hita og hurðaopnara. Þar er einnig þvottahúsaðstaða fyrir efri íbúðina.

Lóð er ræktuð, skjólgóðir steyptir veggir, verönd, hellulagt bílastæði.  

Stutt er náttúruparadís við Hvaleyrarvatn og Helgafel. Gróðrastöðina Þöll og Hestamannafélagið Sörla. Frá húsinu er fágætt, óskert útsýni yfir Skarðsheiði, Esjuna, Móskarðshnúka, Bláfjöll og Helgafell.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is
og  Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 777-0939 / arnor@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (57)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fjóluás 4
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Fjóluás 4
Fjóluás 4
221 Hafnarfjörður
250,2 m2
Raðhús
624
679 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurbakki 1c
Efsta hæð
Skoða eignina Norðurbakki 1c
Norðurbakki 1c
220 Hafnarfjörður
105,7 m2
Fjölbýlishús
312
Tilboð
Skoða eignina Þrastahraun 2
Hleðslustöð
Skoða eignina Þrastahraun 2
Þrastahraun 2
220 Hafnarfjörður
244,2 m2
Einbýlishús
835
725 þ.kr./m2
177.000.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26
Skoða eignina Strandgata 26
Strandgata 26
220 Hafnarfjörður
80,8 m2
Fjölbýlishús
312
1113 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin