Fasteignaleitin
Skráð 6. mars 2026

Englendingavík gisting/veitingar

Atvinnuhúsn.Vesturland/Borgarnes-310
778.4 m2
6 Herb.
Verð
320.000.000 kr.
Fermetraverð
411.100 kr./m2
Brunabótamat
211.200.000 kr.
Friðrik Þ Stefánsson
lögmaður og lögg.fs.
https://miklaborg.isEignalisti
Byggt 1890
Fasteignanúmer
2111699
Húsgerð
Atvinnuhúsn.

Miklaborg kynnir Englendingavík; fasteignir og rekstur veitinga- og gistihússins í Englendingavík í Borgarnensi. Um er að ræða Skúlagötu 17 sem er 379,7 m2 og hýsir veitingastað og gistihús, ásamt Gömlu Pakkhúsunum tveimur, sem hafa verið innréttuð sem gistirými og eru 114,8 m2 og 146,5 m2, sem og Skúlagötu 17 a , sem er 137,4 m2. Þar er rekin heimagisting. Öll húsin hafa verið gerð upp á afar smekklegan máta þar sem upprunalegir innviðir hafa verið látnir halda sér að talsverðu leyti.

Náttúrufegurð í Englendingavík og staðsetning fram við voginn gera staðinn einstakan. Miklir möguleikar á frekari uppbyggingu á ferðatengdri þjónustu og aukningu gistirýmis.

Leitið upplýsinga hjá Friðrik í s. 616 1313

Nánari lýsing: Allar byggingar að Skúlagötu 17 og 17 a hafa verið endurbyggðar og klæddar áli og báru. Upprunalegur stíll innviða hefur verið látinn halda sér að talsverðu leyti þar sem burðarbitar eru sýnilegir og furuborð eða gólffjalir eru á gólfum. Nánar er um að ræða:
Skúlagata 17, F 2111699. Samamstendur af efra húsi á 2 hæðum og neðra húsi á einni hæð. Heilarstærð 379,7 m2. Í neðra húsinu sem er 153,5 m2, er veitingastaður á 2 pöllum með stóru fullbúnu eldhúsi, fullbúnum bar og minna eldhúsi þar inn af, ásamt 2 stórum sólpöllum / úti veitingaaðstöðu. Efra húsið er 226.2 m2. Þar eru 5 gistiherbergj, þ.a. eitt með sér inngangi á neðri hæð og 4 herbergi á efri hæð. Eitt herbergjanna er með aukaherbergi. Öll með sér baðherbergjum.
Gömlu pakkhúsin: eru tvö, sérlega falleg og standa sunnan og austan við veitingastaðinn. Bæði byggð 1890, sem og önnur hús Skúlagötu 17 og 17 a skv. skráningum. Þau hafa einnig verið endurbyggð í upprunalegum stíl þar sem burðarbitar og gólffjalir halda sér og eru bæði innréttujð sem gistirými / útleigueiningar.. Efra pakkhúsið er í heildina 114,8 m2 að stærð, en 47,4 m2 að grunnfleti. þar eru 3 svefnherbergi. Hæð, ris og geymslukjallari. Neðra pakkhúsið er 146,5 m2 að stærð á 2 hæðum. Grunnflötur 78,4 m2 . Það er innréttað sem gistirými / útleigueining með 4 svefnherbergjum.
Skúlagata 17a, F2111702 . Stærð er samtals 137,4 fm. Timburhús, klætt með báru. Húsið er á 2 hæðum og rekið sem heimagisting með 5 herbergjum, sem deila sameiginlegu eldhúsi og 4 baðherbergjum.
Um er að ræða rótgróinn rekstur við Englendingavík í Borgarnesi sem hefur upp á afar mikla sérstöðu og náttúrufegurð að bjóða. Húsnæðið býður jafnframt upp á enn frekari tækifæri til frekari uppbyggingar ferðaþjónustu á svæðinu.  Eignirnar seljast ásamt öllum áhöldum og tækjum sem tilheyra rekstrinum.

Allar frekari upplýsingar veitir Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lögg. fasteignasali í s. 616 1313 eða fridrik@miklaborg.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/11/201430.150.000 kr.50.000.000 kr.650.6 m276.852 kr.Nei
29/05/20094.300.000 kr.16.000.000 kr.646.5 m224.748 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (90)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bogatröð 25
Skoða eignina Bogatröð 25
Bogatröð 25
262 Reykjanesbær
488 m2
Atvinnuhúsn.
2
Fasteignamat 38.750.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Hraunbrekkur 28
Heitur pottur
Hraunbrekkur28.jpg
Skoða eignina Hraunbrekkur 28
Hraunbrekkur 28
320 Reykholt í Borgarfirði
128.8 m2
Sumarhús
44
698 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Brúarfljót 7 Bil O
Hleðslustöð
Bruarfljot_26.jpg
Brúarfljót 7 Bil O
270 Mosfellsbær
150 m2
Atvinnuhúsn.
1
393 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Hvaleyrarbraut 27
Hvaleyrarbraut 27
220 Hafnarfjörður
105 m2
Atvinnuhúsn.
434 þ.kr./m2
45.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin