Kjöreign fasteignasala kynnir Boðaþing 6, Kópavogi. Björt og falleg 3ja herbergja endaíbúð á 2 hæð, fyrir 55 ára og eldri. Gluggar á þrjá vegu. Eignin er þriggja herbergja með yfirbyggðum svölum og stæði í bílageymslu. Mjög vel viðhaldið fjölbýlishús. Vandaðar innréttingar og eikarparket. Eignin skiptist í forstofu, opið rými sem er eldhús borðstofa stofa og sólstofa, tvö svefnherbergi annað m/ sérbaðherbergi og fataherbergi, gestasalerni m/sturtu og þvottahúsinnan íbúðar, sér geymsla í sameign og gott bílastæði í bílakjallara. Birt stærð samkv. HMS er 144,3 fm þar af er geymsla 8,4 fm
Nánari lýsing:
Forstofa: góður forstofuskápur , flísar á gólfi
Eldhús: opið inn í stofu með fallegri eikarinnréttingu. Fallegur og stór gluggi.
Borðstofa / stofa: í opnu rými, björt og góð með góðum gluggum. Parket á gólfi
Sólstofa: flísar á gólfi. Gengið er út á góðar suðursvalir frá sólstofu
Svefnherbergi I: Stór hjónasvíta með stóru baðherbergi með sturtu og fataherbergi.
Baðherbergi: Góð innrétting , vegghengt salerni, handklæðaofn, walk- in sturta, flísar á gólfi og veggjum. Opnanlegur gluggi
Svefnherbergi II: Gott svefnherbergi, góðir fataskápar. Parket á gólfi
Gestasalerni: Lítil innrétting m/ handlaug, vegghengt salerni, sturta, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús: með góðum innréttingum, skolvaskur. Flísar á gólfi.
Sérgeymsla: Er í sameign og er 8,4 fm.
Bílastæði: Mjög rúmgott bílastæði er í bílageymslu.
Sameign: er til fyrirmyndar og mjög vel við haldið.
Falleg, björt og vel hönnuð 3ja herbergja íbúð, vel staðsett í rólegu og eftirsóttu hverfi rétt við Boðann sem er með mikla þjónustu við eldri borgara. Einnig er stutt í alla helstu þjónustu, golf, sund, og annað íþróttastarf, einnig eru fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni ma. Elliðavatn og Heiðmörk.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is.
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 asta@kjoreign.is
Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 dan@kjoreign.is