Fasteignaleitin
Opið hús:25. okt. kl 15:30-16:00
Skráð 21. okt. 2026

Hestamýri 4B

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
138.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
117.800.000 kr.
Fermetraverð
852.388 kr./m2
Fasteignamat
102.200.000 kr.
Brunabótamat
103.020.000 kr.
Byggt 2025
Jarðhæð
Garður
Pallur
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2537095
Landnúmer
232283
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
10
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tveir sérafnotareitir
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Vönduð 3ja herbergja íbúð með tveimur baðherbergjum, tvennum veröndum og stæði í bílageymslu
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 138,2 m² fullbúna 3ja herbergja íbúð við Hestamýri 4B í Garðabæ. Íbúðin er á fyrstu hæð í lyftuhúsi byggðu árið 2025 og er skráð 116 m² auk 22,2 m² sérgeymslu í kjallara.
Eignin er vel skipulögð með björtu alrými, tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og sérþvottahúsi. Aukin lofthæð og gólfsíðir gluggar einkenna íbúðina, ásamt sérsmíðuðum innréttingum frá Parka og vönduðu efnisvali. Íbúðinni fylgja tvennar verandir, þar sem útsýni er yfir til Reykjavíkur, auk sérmerkts bílastæðis í lokaðri bílageymslu.

-  Tvö baðherbergi, annað inn af hjónaherbergi
-  Tvennar verandir og útsýni yfir til Reykjavíkur
-  Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu
-  Sérsmíðaðar innréttingar frá Parka og quartz borðplötur
-  Aukin lofthæð, gólfsíðir gluggar og gólfhiti
-  Sérþvottahús með góðu skápaplássi


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Eignin er skráð samtals 138,2 m² samkvæmt HMS og skiptist í 116 m² íbúð, merkta 02-0110, og 22,2 m² sérgeymslu í kjallara. 
Fasteignamat fyrir árið 2027 er 106.450.000 kr.
Íbúðinni fylgja tvennar verandir (sérafnotareitir) ásamt sérmerktu bílastæði í lokaðri bílageymslu, merkt B25.
Hestamýri 3–4 er 32 íbúða lyftuhús, byggt árið 2025. Húsfélagsgjöld eru 26.388 kr. á mánuði og innifela hita, rafmagn í sameign, húseigendatryggingu, ræstingu sameigna, rekstur og umsjón lyftu og rekstur bílageymslu.

Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inní forstofu með góðum fataskápum og tengist alrými íbúðarinnar.
Eldhús, stofa og borðstofa: Eldhús og stofa mynda bjart og rúmgott alrými með aukinni lofthæð og gólfsíðum gluggum. Góð aðstaða er fyrir borðstofu og setustofu og úr alrýminu er gengið út á verönd með útsýni yfir til Reykjavíkur. Eldhúsið er með sérsmíðaðri innréttingu frá Parka sem nær upp í loft, quartz borðplötu og eldhústækjum af gerð AEG.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum sem ná þvert yfir vegginn og sérbaðherbergi inn af.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Með innréttingu, handlaug, salerni og sturtu, flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi II: Með fataskáp og gólfsíðum glugga.
Aðalbaðherbergi: Með innréttingu, handlaug, salerni og sturtu, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Sérþvottahús með innréttingu, góðu skápaplássi, skolvaski og quartz borðplötu ásamt tengingum fyrir þvottavél og þurrkara.

Innréttingar og frágangur:
Innréttingar eru sérsmíðaðar frá Parka og ná upp í loft. Quartz borðplötur eru í eldhúsi, á baðherbergjum og þvottahúsi.
Á gólfum er 12 mm harðparket frá Parka með vottuðum hljóðdúk undir og flísar frá Emil Ceramica á baðherbergjum.
Gluggar og svalahurðir eru timburgluggar með álklæðningu að utan frá Rationel og sturtuþil eru sérsmíðuð úr hertu öryggisgleri.
Í íbúðinni er gólfhiti og loftræstikerfi með varmaendurvinnslu sem sér um loftskipti í rýmum íbúðarinnar og nýtir varma úr frálofti til að hita innstreymisloft. Í húsinu er brunaviðvörunarkerfi í þjónustu Securitas.

Verandir og geymsla:
Íbúðinni fylgja tvennar verandir (sérafnotareitir).
Sérgeymsla í kjallara er 22,2 m² að stærð og býður upp á gott geymslupláss.

Sameign og bílageymsla:
Í sameiginlegum bílakjallara undir húsinu eru sérmerkt bílastæði og lokaðir bílskúrar. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði, B25.
Hjólageymsla er fyrir hvert stigahús og á sameiginlegri lóð Hestamýrar 1–6 eru jafnframt almenn bílastæði.
Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með álklæðningu.

Byggingaraðilar og hönnun:
Húsbyggjandi er Hestamýri ehf. Arkitektar og aðalhönnuðir eru Nordic Office of Architecture og Birkir Árnason. Aðalverktaki er Flotgólf ehf. og innanhússhönnun er í höndum Sæbjargar Guðjónsdóttur.
Hestamýri 4B er vel skipulögð og vönduð íbúð. Sjón er sögu ríkari og áhugasamir eru hvattir til að koma og skoða eignina.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/05/2026102.200.000 kr.108.000.000 kr.138.2 m2781.476 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2537095
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B2
Númer eignar
5
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.870.000 kr.

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 1
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Vorbraut 1
Vorbraut 1
210 Garðabær
136,4 m2
Fjölbýlishús
322
1099 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1
Skoða eignina Vorbraut 1
Vorbraut 1
210 Garðabær
123,2 m2
Fjölbýlishús
312
1054 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1
Skoða eignina Vorbraut 1
Vorbraut 1
210 Garðabær
115 m2
Fjölbýlishús
312
1017 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1
Skoða eignina Vorbraut 1
Vorbraut 1
210 Garðabær
114,6 m2
Fjölbýlishús
312
1003 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin