Fasteignaleitin
Skráð 8. okt. 2026

Asparskógar 18

FjölbýlishúsVesturland/Akranes-300
60.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.000.000 kr.
Fermetraverð
895.522 kr./m2
Brunabótamat
38.350.000 kr.
Byggt 2023
2. hæð
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
25198731
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

FastVest fasteignasala og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynnir: Fallega 2ja herbergja íbúð á 2.hæð með sérinngangi í Asparskógum 18 á Akranesi. 

** SKOÐA SKIPTI Á DÝRARI 4RA HERB ÍBÚÐ **

Íbúðin er björt og vel skipulögð. Stutt í útivistarsvæði, golfvöll og tvo leikskóla, allt í göngufæri.


Nánari lýsing:
Forstofa: Forstofa flísar á gólfi og góðir skápar. 
Tengi fyrir þvottavél og Þurrkara á í skáp á gangi.
Svefnherbergi: Svefnherbergið er með fataskápum frá GKS og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með brúnni borðplötu og hvítri handlaug. Speglaskápur yfir handlaug. Upphengt salerni með hæglokandi setu, "walk in" sturta og handklæðaofn. Hitastýrð blöndunartækin frá Tengi. Veggflísar og gegnheilar flísar á gólfi.
Eldhús: Vönduð brún Nobilia innrétting með hvítum efri skápum frá GKS innréttingum. Raftæki frá AEG, veggofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Vifta er frá Elica. Eldhúsvaskur og blöndunartæki er svart að lit og er frá Tengi. Harðparket á gólfi.
Stofa: Stofan er í opnu rými með eldhúsinu með parketi á gólfi og útgengi á rúmgóðar svalir
Hjóla- vagnageymsla: Hjóla- og vagnageymslan er sameiginleg í sameign á jarðhæð hússins.

Um er að ræða íbúð 0209 og er hún skráð 60,3 fm á stærð 

Sameign: Á 1. hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Rafmagnstöflur og rafmagnsmælar íbúða er staðsett í sameigninni.
Lóð/bílastæði: Lóðin er 3325,0 fm. Innan lóðar eru 32 bílastæði, þar af eru 14 sérmerkt f. rafmagnsbíla og 3 fyrir hreyfihamlaða. Bílastæði við götu eru malbikuð. 2 hleðslustaurar sitthvoru megin við húsið með 2 tenglum hvor.

Annað: Ljósleiðari er tengdur inn í húsið og endar í tengikassa hverrar íbúðar. Netdreifikerfi er í íbúðinni. Ljósbreytir við tengikassa kemur frá símafélagi íbúans. Sorpgeymslur eru niðurfelldar á lóð (djúpgámar)

Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali fastvest@fastvest.is / sími 861-4644


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FastVest fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.  Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.  Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

FastVest með þér alla leið

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
FastVest fasteignamiðlun
http://www.fastvest.is

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Asparskógar 21
Skoða eignina Asparskógar 21
Asparskógar 21
300 Akranes
73,3 m2
Fjölbýlishús
312
735 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 18
Skoða eignina Asparskógar 18
Asparskógar 18
300 Akranes
76,4 m2
Fjölbýlishús
312
849 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Akurgerði 10
Skoða eignina Akurgerði 10
Akurgerði 10
300 Akranes
63,5 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
628 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Hjarðarholtsvegur 2
Heitur pottur
Opið hús:10. okt. kl 14:00-15:00
hJARÐARHOLTSVEGUR.jpg
Hjarðarholtsvegur 2
276 Mosfellsbær
47,5 m2
Sumarhús
312
629 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin