Fasteignaleitin
Skráð 10. jan. 2024
Deila eign
Deila

Stóru-laugar

Atvinnuhúsn.Norðurland/Laugar-650
747.9 m2
9 Herb.
18 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
28.975.000 kr.
Brunabótamat
590.460.000 kr.
Byggt 1949
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2164075
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Gott
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Gott
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Gott
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Ferðaþjónustan að Stóru-Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsveit (Stóru-Laugar 2 og 3)

Um er að ræða tvö hús undir gisti- og veitingarekstur auk stórrar lóðar hvar jafnframt er hægt að vera með tjaldsvæði.
Stóru-Laugar eru í fallegu umhverfi Reykjadals sem er skemmtileg staðsetning á milli margra af helstu ferðamannastöðum á Norðurlandi.  Um 60 km eru til Akureyrar, 40 km til Húsavíkur og um 30 km til Mývatns.  Laugar eru í göngufæri og þar er sundlaug, framhaldsskóli og verslun svo eitthvað sé nefnt.

Húsin að Stóru-Laugum eru tvö.  Eldra húsið var byggt árið 1949, steypt hús á tveimur hæðum auk riss sem gert var upp og breytt í gistiheimili árið 2006. Húsið er skráð 311,4 m² að stærð og í því eru 10 herbergi og öll með baðherbergjum.  3 herbergi eru á jarðhæðinni en þar er jafnframt þvottahús og geymsla.  4 herbergi eru á efri hæð og í risi eru 3 herbergi.  Öll herbergin á hæðunum eru mjög rúmgóð, en herbergin í risi eru minni en skemmtileg og undir súð. Sunnan við húsið er stór pallur og rúmgóður steyptur heitur pottur.   Þegar húsið var gert upp árið 2006 voru allar, vatns- og raflagnir endunýjaðar, allar innréttingar og gólfefni, sem og gluggar og gler auk þess sem húsið var einangrað að utan og klætt.

Yngra húsið var byggt árið 2013 og er skráð 436,5 m² að stærð.  Neðri hæðin er steypt og skiptist í móttöku, veitingasal, setustofu, eldhús, salerni, starfsmannaaðstöðu og geymslur.
Gengið er inn í neðri hæðina á vesturhlið hússins og þar fyrir framan er viðarverönd.  Veitingasalurinn tekur um 50 manns í sæti og þar er flögutex á gólfum.  Innaf salnum er fullbúið eldhús með epoxíðefni á gólfum.  Salerni eru bæði fyrir gesti sem og fyrir starfsfólk og innaf eldhúsi er kaffistofa fyrir starfsfólk.  Neðri hæðin er skráð 216,0 m² að stærð.
Efri hæðin er samsett úr timbureiningum og skiptist í 8 herbergi sem öll eru með baðherbergjum og sér inngangur er í öll herbergin.  Stór timburverönd er við suðurhlið hússins er einnig er timbuverönd hvar gengið er inn í herbergin á austur og norðurhlið hússins.
Einnig er á efri hæð aðstöðu- og vinnurými fyrir starfsfólk.  Efri hæðin er skráð 220,5 m² að stærð.

Lóðin sem fylgir eignunum er 21.404 m² að stærð (eignarlóð) eða rétt rúmir 2 ha og nær m.a. nokkuð norður fyrir neðra húsið hvar auðvelt er að vera með tjaldsvæði.  Nyrst á lóðinni eru salerni sem notuð voru fyrir tjaldsvæði sem þarna var rekið um tíma og þar eru jafnframt rafmagnstenglar fyrir ferðahýsi.  Norðan við veitingasöluna er frístandandi kælir sem fylgir með við sölu.

Við sölu myndu fylgja með allir rekstrarmunir sem og bókanir, og miðast við eignirnar seljist í fullum rekstri.  Eigendur vilja helst selja félagið sem heldur utan um reksturinn og á fasteignirnar, Sóru-Laugar ehf kt. 600201-2630 en einnig er mögulegt að félagið selji eignirnar út úr rekstrinum.  

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2013
436.5 m2
Fasteignanúmer
2348011
Byggingarefni
Steypa+timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Húsmat
35.250.000 kr.
Lóðarmat
2.310.000 kr.
Fasteignamat samtals
37.560.000 kr.
Brunabótamat
193.750.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignanúmer
2164072
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Húsmat
72.418.000 kr.
Lóðarmat
738.000 kr.
Fasteignamat samtals
73.156.000 kr.
Brunabótamat
242.660.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Hvammur Eignamiðlun
https://www.kaupa.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kaldbaksgata 0
Skoða eignina Kaldbaksgata 0
Kaldbaksgata 0
600 Akureyri
695.1 m2
Atvinnuhúsn.
3
249 þ.kr./m2
173.000.000 kr.
Skoða eignina Betri vörur ehf - Múlavegi 7
Betri vörur ehf - Múlavegi 7
625 Ólafsfjörður
704.8 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 9.420.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Kríunes 2
Skoða eignina Kríunes 2
Kríunes 2
630 Hrísey
749.6 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 10.329.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache