RE/MAX KYNNIR Í EINKASÖLU: Virkilega vel skipulagða enda íbúð á 4. Hæð (efstu) við Nónhamar 8 í Hafnarfirði.Íbúð 0404: Vel skipulögð, flott og vönduð þriggja til fjögurra herbergja 80,0 fm. á 4. hæð frá aðalinngangi í nýju 20 íbúða lyftufjölbýli við Nónhamar 8, 221 Hafnarfjörður.
Í íbúðinni eru tvö rúmgóð svefnherbergi. Íbúðin er þó með möguleika á að hafa þrjú svefnherbergi, þar sem að geymsla innan íbúðar er með glugga og opnanlegu fagi.
Íbúðir skilast allar fullbúnar án gólfefna að undanskildum votrýmum ( samkvæmt skilalýsingu ), inni á baðherbergjum sem verða flísalögð með flísum frá Parka, ljós brúnum að lit í stærð 60x60.
Ath þrívíddarmyndir eru aðeins til viðmiðunar.
Bókið skoðun hjá Ástþór Reynir í síma 899-6753 eða Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is eða gj@remax.is.
Nánar um eign: Nónhamar 8. Eignin er þriggja til fjögurra herbergja íbúð á fjórðu hæð (efstu hæð) Íbúðin skiptist í opna stofu með eldhúsi, úr stofunni er gengið út á svalir. Hjónaherbergi með fataskáp. Barnaherbergi. Baðherbergi með upphengdu salerni og sturtu. Flísar á gólfum og að hluta til á veggjum. Geymsla innan íbúðar með glugga og opnalegu fagi. (mögulega hægt að nýta sem barnaherbergi). Í sameigninni er sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Matshlutans, merkt 0404, birt stærð 80,0 fm. Svalir á fjórðu hæð, merktar 0412, stærð 7,5 fm.
Áætlaður afhendingartími á Íbúðum er í mars 2023.Um er að ræða vandaðar og vel skipulagðar íbúðir í nálægð við útivistar- og náttúrusvæði. Afar stutt er í fallegar gönguleiðir þar sem hverfið er vel staðsett gengt Skarðshlíðarhverfinu í Hafnarfirði.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita:Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma
899-6753 eða arg@remax.is
Guðmundur Þór Júlíusson aðstoðarmaður fasteignasala, í námi til löggildingar í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.