Fasteignasala Austurlands kynnir Efstagerði 3, Reyðarfirði: Um er að ræða fallegt og vel skipulagt 144,6 m² raðhús úr timbri ásamt sambyggðum bílskúr. Húsið stendur á frábærum fjölskylduvænum stað á Reyðarfirði þar sem stutt er í fallega náttúru.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.isEignin skiptist upp í forstofu, gang, bjarta stofu og borðstofu í opnu rými, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og bílskúr þar innan af. Að aftanverðu er útgengt úr stofu út á góðan sólpall.
- Glæsilegt útsýni til fjalla
- Rúmgóður sólpallur
- "Sérsmíðuð“ rennibraut í bakgarði fyrir yngstu kynslóðina
- Innangengt í bílskúr beint úr húsi
- Góð staðsetning í botnlanga
Vel skipulagt og bjart fjölskylduhús!Forstofa: Flísalögð á gólfi með mjög stórum og rúmgóðum viðarfataskáp.
Eldhús: Falleg viðarinnrétting með miklu skápaplássi, dökkri borðplötu, bökunarofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Bjartur gluggi er í eldhúsi sem vísar út að fjöllunum. Eldhúsið er að hluta til opið inn í stofu .
Stofa/borðstofa: Mjög bjart og stórt opið rými. Ljóst parket á gólfi, stórir gluggar og útgengt er út á rúmgóðan sólpall .
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott (13,5 m²), lagt ljósu parketi og með stórum fataskáp .
Svefnherbergin: Tvö fín barnaherbergi (9,2 m² og 9,3 m²), bæði með sama ljósa parketi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með hvítum og gráum flísum. Ljós innrétting með viðar og hvítum skápum, baðkar og sturtuklefi .
Þvottahús/Geymsla: Fínt vinnurými, nýtist sem þvottahús og tengir saman íbúð og bílskúr .
Bílskúr: Rúmgóður og snyrtilegur bílskúr (27,8 m²) sem innangengt er í úr þvottahúsi.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.isSkráning eignarinnar skv. HMS:Fasteignanúmer: F2296992
Stærð: Raðhús, 144,6 m²
Byggingarár: 2006
Byggingarefni: Timbur
Gildandi fasteignamat 2026: 54.050.000 kr.
Brunabótamat: 71.800.000 kr.
Lóð: Íbúðarhúsalóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 526,5 m²
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.
Skoðunarskylda kaupenda:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði