Fasteignaleitin
Opið hús:30. okt. kl 18:00-18:30
Skráð 26. feb. 2026

Reynidalur 3

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
97.9 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.500.000 kr.
Fermetraverð
658.836 kr./m2
Fasteignamat
62.650.000 kr.
Brunabótamat
50.400.000 kr.
SÖ
Sigurður Örn Hannesson
Tengiliður seljanda
Eignalisti
Byggt 2020
Svalir
Fasteignanúmer
F2508337
Landnúmer
210433
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer íbúðar
3
Svalir
já

ÞAÐ ER EKKI OPIÐ HÚS Á MORGUN, FÖSTUDAG 30. OKTÓBER, KLUKKAN 18:00 !!

ÞAÐ ER OPIÐ HÚS LAUGARDAGINN 31. OKTÓBER OG KLUKKAN 18:30 !!! 

 

Einstaklega rúmgóð og björt 3-4 herbergja endaíbúð á efri hæð í nútímalegu tveggja hæða fjölbýli. Íbúðin er vel skipulögð með sérinngangi og suðursvölum.


Umhverfi

Húsið er í Dalshverfi á Reykjanesinu sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Útsýni yfir Keflavík og falleg náttúra í næsta nágrenni sem býður upp á fjölmarga útivistarmöguleika. Reykjanesbrautin er rétt hjá og um 15 mínútna akstur til Hafnarfjarðar.

Fitjar eru í 5 mínútna aksturs fjarlægð þar sem er mikill þjónustukjarni með matvörubúðum, verslunum, veitingastöðum og fleira.

Stapaskóli er í göngufæri, sem er einn glæsilegasti leik- og grunnskóli landsins, en þar er einnig tónlistarskóli, frístunda- og félagsmiðstöð, íþróttahús, sundlaug og bókasafn.

 

Bílastæði

Fyrir framan húsið eru malbikuð bílastæði. Sérmerkt bílastæði fyrir íbúðina ásamt gestastæðum.

 

Forstofa

Rúmgóð forstofa með flísalögðu gólfi og stórum fataskáp.

 

Eldhús

Nútímalegt opið eldhús saman við stofu. Vönduð innrétting frá Arens, ný borðplata, helluborð frá AEG með háfi og innbyggðum blástursofni í þægilegri vinnuhæð.

 

Stofa

Björt og rúmgóð stofa með harðparketi frá Birgisson, útgengi er út á góðar suður svalir – kjörinn staður til slökunar og sólbaða.

 

Svefnherbergi

Tvö rúmgóð svefnherbergi með harðparketi frá Birgisson og stórum innbyggðum skápum frá Arens.

 

Baðherbergi

Nútímalegt baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta. Útbúið með fallegum innréttingum frá Arens, stórum spegli, upphengdu salerni, walk-in sturtu, handklæðaofni, glugga og loftræstingu.

 

Þvottahús / þvottasvæði

Hagnýtt þvottasvæði inn af baðherberginu með hvítri innréttingu og góðri vinnuaðstöðu, skolvaski og rými fyrir þvottavél og þurrkara.

 

Geymsla / möguleiki á þriðja svefnherbergi

Aukarými með parketi og glugga sem nýtist sem geymsla, heimaskrifstofa eða þriðja svefnherbergi.

 

Útisvæði

Íbúum til afnota er sameiginlegt, vel hirt svæði með grasflöt við suðurhlið hússins. Góðar gönguleiðir í næsta nágreni og stutt út í náttúruna.

 

Fyrir nánari upplýsingar

Sími: +354 888 1245

Netfang: sohh354@gmail.com

 

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bogabraut 953
Efsta hæð
Skoða eignina Bogabraut 953
Bogabraut 953
262 Reykjanesbær
92,4 m2
Fjölbýlishús
312
503 þ.kr./m2
46.500.000 kr.
Skoða eignina Bárusker 4
Skoða eignina Bárusker 4
Bárusker 4
245 Sandgerði
78,6 m2
Fjölbýlishús
312
698 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Faxabraut 27
Efsta hæð
Skoða eignina Faxabraut 27
Faxabraut 27
230 Reykjanesbær
78,7 m2
Fjölbýlishús
312
596 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina Smiðjustígur 11
Smiðjustígur 11
101 Reykjavík
92,4 m2
Fjölbýlishús
413
843 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin