Fasteignaleitin
Skráð 12. okt. 2026

Karfavogur 44

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
113.7 m2
5 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
87.500.000 kr.
Fermetraverð
769.569 kr./m2
Brunabótamat
58.200.000 kr.
Byggt 1948
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
20228561
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Um er að ræða fallega efri sérhæð í tvíbýlishúsi við Karfavog 44, 104 Reykjavík. Húsið var byggt árið 1948 af sænskri Berga 1 gerð, þar sem Þórir Baldvinsson og Árni Hoff-Möller voru hönnuðir af. Húsið er kjallari, hæð og þakrými. Kjallarinn er steyptur en aðalbyggingarefni á 1. hæð er timbur og er milliplata úr timbri. Þak er hefðbundið timburþak. Í dag eru fimm svefnherbergi í eigninni - þakið var endurnýjað árið 2021. Húsið hefur fengið reglulegt viðhald í gegnum árin. 

Nánari lýsing eignar: Sérinngangur. Komið er inn í forstofu. Á vinstri hönd frá forstofu er eldhús með hvítri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa, borðkrókur. Innaf eldhúsi eru tvö svefnherbergi (skv teikningu er þetta rými stofa / borðstofa). Við eldhús er gengið niður í sameignina þar sem er sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla með nýlegum glugga. Nýleg rafmagnstafla. Björt stofa með parketi á gólfi. Parketlagður gangur. Baðherbergi með sturtu, neðri skáp, upphengdu salerni, handklæðaofni og glugga. Baðherberbergið var endurnýjað árið 2024. Þrjú svefnherbergi til viðbótar og eru tvö þeirra með fataskáp. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum fyrir utan baðherbergi en þar eru vínylflísar..  

VIRKILEGA GÓÐ STAÐSETNING ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU T.A.M. LAUGARDALINN, LEIK-, GRUNN OG FRAMHALDSSKÓLA, VERSLANIR, ÍÞRÓTTA OG ÚTIVISTARSVÆÐI.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@aldirfasteignir.is
 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dugguvogur 9
Bílastæði
Opið hús:26. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Dugguvogur 9
Dugguvogur 9
104 Reykjavík
126,3 m2
Fjölbýlishús
514
751 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Álfkonuhvarf 55
Bílastæði
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:26. okt. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Álfkonuhvarf 55
Álfkonuhvarf 55
203 Kópavogur
99 m2
Fjölbýlishús
312
782 þ.kr./m2
77.400.000 kr.
Skoða eignina Hrísmóar 10
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:28. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hrísmóar 10
Hrísmóar 10
210 Garðabær
97,5 m2
Fjölbýlishús
312
768 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Sóleyjarimi 15
Bílastæði
Opið hús:26. okt. kl 17:15-17:45
Skoða eignina Sóleyjarimi 15
Sóleyjarimi 15
112 Reykjavík
118,8 m2
Fjölbýlishús
413
799 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin