Tjarnarlaut 19, 805 Selfoss.
Heilsárs/sumarhús á fallegum og grónum stað við
Þingvallavatn. Húsið er skráð 63,0 fm, en auk þess eru rými undir súð / á lofti og önnur nýtanleg rými sem eru ekki inni í skráðri fermetratölu. Húsið stendur á
6.520 fm leigulóð þar sem mikill metnaður hefur verið lagður í lóð, gróður, palla og útiaðstöðu. Á lóðinni eru jafnframt gestahús, geymsluskúrar, barnahús,
rafmagnspottur og útisturta. Hér er um að ræða sérstaka frístundareign í fallegu umhverfi við Þingvallavatn.
Birt stærð eignar er 63fm. + óskráð 10m2 gesthús og 16,9m2 svefnlofti
Helstu atriði- Sumarhús við Þingvallavatn
- Rými undir súð / á lofti og önnur nýtanleg rými sem eru utan skráðrar fermetratölu.
- Gistipláss fyrir 6-8 manns
- 6.520 fm leigulóð. Lóðarleigusamningur gildir til 2046
- Gróin og vel hirt lóð þar sem plantað hefur verið fjölda trjáa, blóma og runna.
- Stórir pallar, rafmagnspottur og útisturta.
- Gestahús sem í dag hýsir innfrarauðri saunu, geymsluskúrar og barnahús á lóðinni.
Nánari lýsingVið Tjarnarlaut 19 skiptist í tvö svefnherbergi, rúmgott svefnloft með gistiaðstöðu fyrir allt að 4.Húsið er skráð 63,0 fm en auk þess eru rými undir súð / á lofti og önnur nýtanleg rými sem eru ekki inni í skráðri fermetratölu. Þessi rými auka notagildi hússins og gefa eigninni fjölbreyttari nýtingarmöguleika.
Eldhús / Stofa myndar opið rými. Rýmið er opið og skemmtilegt fjölskyldurými með ágætis lofthæð og skemmtilegu útsýni. Eldhúsið er með ágætis skápaplássi og eldhúsborði.
Út frá eldhúsi / stofu er gengið út á pall og hluti af rýminu er yfirbyggður sem veitir sérstakt skjól.
Tvö svefnherbergi Herbergi 1.Rúmgott herbergi með tvíbreiðu rúmi og góðum fataskáp. Þetta herbergi er samsett úr tveimur herbergjum. Á teikningu eru þetta tvö herbergi, eitt með tvíbreiðu rúmi og annað minna með kojum. Auðvelt er að skipta herberginu aftur í tvö herbergi og fá þannig gistiaðstöðu fyrir fleiri.
Herbergi 2.Herbergi með tvíbreiðu rúmi og fataskáp
Við geymslu í anddyri er tengi fyrir þvottavél
Lóðin er 6.520 fm leigulóð og hefur verið unnið markvisst að því að skapa gróið, skjólgott og notalegt umhverfi. Plantað hefur verið fjölda trjáa, blóma og runna sem gefa lóðinni fallegt yfirbragð og góða tilfinningu fyrir næði.
Útiaðstaðan er einn af helstu kostum eignarinnar, með stórum pöllum, rafmagnspotti og útisturtu.
Húsið sjálft hefur notalegt yfirbragð og góða tengingu við umhverfið.
Útsýnisgluggar njóta sín vel og var skipt um gler í flestum gluggum árið 2021.Stórir gluggar auka teninguna við náttúruna og umhverfið.
Á lóðinni er
gestahús með innfrarauðri saunu, tveir geymsluskúrar og barnahús. Þessi aukarými nýtast vel fyrir útibúnað, garðverkfæri, leikföng og annað sem fylgir frístundalífi. Samkvæmt upplýsingum frá seljanda er borhola sér fyrir húsið og heimilt er að hafa uppsátur fyrir bát vestast í
Hestvík.
Núverandi eigandi byggði húsið og hefur lagt metnað í að halda húsinu vel við. Fyrir nokkrum árum var teiknuð stækkun á húsinu og býður lóðin uppá stækkunnarmöguleikaHér er um að ræða frístundareign með sterka sérstöðu, þar sem staðsetning við
Þingvallavatn, gróin lóð, góð útiaðstaða og fjölbreytt nýtanleg rými mynda heild sem hentar vel þeim sem leita að friðsælu athvarfi í náttúrunni.
Nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Ómar Hjaltason astmf. S:778-9090 eða omar@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.