Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Hafið samband við Odd í s. 862 1397 til að bóka skoðun.
Nánar:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi. Stór innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og vaskur.
Frá forstofu er gengið til vinstri inn á svefnherbergisgang.
Svefnherbergi 1 hjónaherbergi er rúmgott með skápum og vinilparketi á gólfi.
Svefnherbergi 2 og 3 eru bæði rúmgóð herbergi með skáp og beykiparketi á gólfi
Svefnherbergi 4 er rúmgott með beykiparket á gólfi.
Baðherbergi var gert upp árið 2018. Flísalagt í hólf og golf, vegleg svört innrétting, upphengt salerni, baðkar með sturtu og handklæðaofn.
Á svefnherbergisgangi er jafnframt vinnuaðstaða/skrifborð.
Stofan er rúmgóð og björt, gluggar á 2 hliðar og gengið út á rúmgóðan pall. Steinhleðsla með náttúrugrjóti á einum vegg, tréþil fyrir sjónvarp. Vinilparket á gólfum.
Eldhúsið var endurnýjað í lok árs 2021. Viroc borðplata á eyju. Spaneldavél með innbyggðum gufugleypi. Ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, ísskápur, frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð og fylgja með.
Rúmgóð borðstofa er opin við eldhús og stofu.
Geymsluloft er yfir öllu húsinu.
Þakjárn og pappi var endurnýjað 2016.
Stórir pallar frá árinu 2015 eru umhverfis húsið með veglegum steyptum potti sem klæddur er náttúrugrjóti.
Útihús á lóðinni er 90 fm og var upphaflega pökkunarhús fyrir grænmeti en hefur verið nýtt sem hesthús undanfarin ár.
Lóðin er gróin, 1,5 hektara leigulóð í eigu ríkisins og er ýmis nýting möguleg á lóðinni. Eignin er á háhitasvæði og á rétt á miklu magni af heitu vatni.
Leik- og grunnskóli eru í göngufæri.
Um er að ræða skemmtilega og fallega eign með mikla möguleika í þéttbýliskjarnanum við Kleppjárnsreyki. Frábær staðsetning í Borgarfirði, um klukkustundar akstur frá Reykjavík, stutt í Borgarnes og Hvanneyri sem og í Húsafell og náttúruböðin í Kraumu.
Allar nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Kristjánsdóttir lgf., á netfanginu holmfridur@kaupstadur.is eða í s. 698 0060
FyrirvararÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
220 | 171.9 | 85,7 | ||
210 | 234.4 | 88,9 | ||
605 | 213.4 | 93,9 | ||
300 | 204 | 92,9 | ||
810 | 174.9 | 89,9 |