Fasteignaleitin
Skráð 15. okt. 2026

Laugavegur 170 íb 703 - Heklureitur

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
199.6 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
275.000.000 kr.
Fermetraverð
1.377.756 kr./m2
7. hæð · efsta
Svalir
Fasteignanúmer
25364917
Húsgerð
Fjölbýlishús

Eignamiðlun kynnir:

Rúmgóð íbúð á efstu hæð sem býður upp á einstakt útsýni yfir Faxaflóa að Esjunni ásamt útsýni yfir borgina. Hjónasvítan hefur stórt baðherbergi með tvöfaldri sturtu ásamt baðkari. Þá eru þrennar svalir, tvær til norðurs og einar til suðurs. Lofthæð er 3,7m.

NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR
: Lilja Guðmundsdóttir, Löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

Þriggja til fjögurra herbergja rúmgóð íbúð þar sem bæði svefnherbergin eru með baðherbergi inn af herberginu (ensuite). Eldhúsið er frábærlega útbúið fyrir matgæðinga þar sem gengið er í gegn um eldhús inn í búr með vaski og plássi sem má innrétta t.d. fyrir stærri vínskáp og auka ísskáp. Þá er möguleiki á að koma fyrir arni í stofu. Í íbúðinni er sér þvottahús. Glæsilega innréttuð íbúð búin öllum nútíma þægindum. Tvö einkastæði fylgja íbúðinni ásamt rúmgóðri 20,6 m2 geymslu.
  • Birt stærð: 191,7 m2
  • Þar af geymsla: 20,6 m2 
  • Herbergi: 3-4
  • Einkastæði: B01,B02
  • Svalir: Þrennar

**Sækja söluyfirlit**

**Skoða heimasíðu verkefnis**


Hönnun:
Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum og einnig verða vélræn loftskipti í þeim sem tryggir aukin loftgæði. Hafstudio og Studio Homestead komu að hönnun innréttingannna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra og munu kaupendur hafa tækfæri á að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergjum. Íbúðirnar hafa einstakt útsýni til fjallahringsins og yfir borgina.

Í eldhúsinu verður eyjan, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini sem er sérframleiddur á Ítalíu frá Santamargherita. Íbúðirnar eru búnar stórglæsilegum og vönduðum tækjum frá Siemens. Þau koma úr studioLine línunni sem að býður úrval glæsilegra tækja sem gera matreiðsluna sérlega þægilega og ánægjuríka. Úrvalstæki þar sem gott jafnvægi ríkir á milli nýjunga og stílhreinnar hönnunar sem er óháð tíð og tíma. Á baðherbergjum verða blöndunartækin innbyggð með gun metal lit. Quartz borðplata á baðinnréttingu. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða bað eru valin með tilliti til gæða og endingar.

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

Afhending miðast við árslok 2026

Nánari upplýsingar veita fasteignasalar Eignamiðlunar:
Kjartan Hallgeirsson 824-9093 kjartan@eignamidlun.is
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson 864-5464 gudlaugur@eignamidlun.is
Kári Sighvatsson 899-8815 kari@eignamidlun.is
Gunnar Bergmann Jónsson 839-1600 gunnarbergmann@eignamidlun.is
Brynjar Þ. Sumarliðason 896-1168 brynjar@eignamidlun.is
Rögnvaldur Örn Jónsson 660-3452 rognvaldur@eignamidlun.is
Unnar Kjartansson 867-0968 unnar@eignamidlun.is 
Lilja Guðmundsdóttir 649-3868 lilja@eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stigahlíð 48
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Stigahlíð 48
Stigahlíð 48
105 Reykjavík
194,6 m2
Fjölbýlishús
615
770 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Úugata 74
Bílskúr
Skoða eignina Úugata 74
Úugata 74
270 Mosfellsbær
209 m2
Parhús
524
669 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Smiðjustígur 11
Smiðjustígur 11
101 Reykjavík
92,4 m2
Fjölbýlishús
413
843 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Kolagata 1
Skoða eignina Kolagata 1
Kolagata 1
101 Reykjavík
117,5 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 97.650.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin