Fasteignaleitin
Opið hús:28. nóv. kl 13:00-13:30
Skráð 24. nóv. 2026

Sólheimar 32

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
94.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
949.314 kr./m2
Brunabótamat
48.500.000 kr.
Byggt 1960
Svalir
Baðkar
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20219141
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

*** NÝTT Á SKRÁ ***

Aldir Fasteignir og Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali (s. 774 7373 / ragnar@aldirfasteignir.is), kynna mikið endurnýjaða 4-5 herbergja 94,7 fm. íbúð á efstu hæð, sem er inndregin og því með stórar svalir, þar sem útsýni nýtur.  Skipulag íbúðar er breytt frá upprunalegri teikningu. Eldhús- og stofa liggja saman í björtu rými, auk þess sem tvö barnaherbergi hafa verið sameinuð í eitt og forstofuherbergi verið stækkað.  Því eru öll herbergin þrjú vel stór.  Á seinustu árum hefur húsið fengið drjúgt viðhald.    Þetta er mjög aðlaðandi íbúð og ríflega 20 fm sólríkar þaksvalir gefa henni aukið gildi.


Komið er upp á stigapall framan við íbúðina, þar sem er skápur og hengi, og gengið inn í stórt og bjart stofu- og borðstofurými og þaðan gengið út á svalir. Inn af stofu er eldhús með stórri hvítri innréttingu, miklu skápa- og skúffuplássi og stein á borðum. Við innganginn er gott forstofuherbergi með glugga á tvo vegu. Á svefnherbergisgangi er hjónaherbergi og gott barnaherbergi, sem áður var tvö herbergi og má auðveldlega færa til fyrra horfs. Skápar eru í báðum herbergjum og svalir út af hjónaherbergi.  Fremst á ganginum er mikið endurnýjað baðherbergi með flísum á gólfi, innréttingu, upphengdu  salerni og baðkari með sturtuhengi.  Opnanlegur gluggi er á baðherbertginu og tengi fyrir þvottavél en gott þvottahús er jafnframt í kjallara hússins.
Parket er á öllum gólfum, nema á baðhergi.

Íbúðin er mjög skemmtileg og húsið verið múrviðgert og málað, gluggar, þakefni og -rennur endurnýjað og timbur eftir þörfum.
Fyrir nokkrum árum var rafmagnstafla endurnýjuð og skólplagnir fóðraðar og endurbættar.

Mikið endurnýjuð eign og vel staðsett, neðan við götu, þar sem njóta má sólardaga á stórum útsýnissvölum. 
Stutt er í leikskóla, skóla, menntaskóla, þjónustu, afþreyingu og útivistarmöguleika sem þetta vinsæla hverfi býður upp á. 
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 774 7373 eða ragnar@aldirfasteignir.is

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg íbúð 303
Hleðslustöð
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 303
105 Reykjavík
98,8 m2
Fjölbýlishús
212
1011 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 110
Hleðslustöð
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 110
105 Reykjavík
101 m2
Fjölbýlishús
312
988 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 205
Hleðslustöð
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 205
105 Reykjavík
86,8 m2
Fjölbýlishús
312
990 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 123
Hleðslustöð
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 123
105 Reykjavík
84,9 m2
Fjölbýlishús
312
965 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin