Fasteignaleitin
Skráð 25. sept. 2026

Hvanneyrarbraut 60

FjölbýlishúsNorðurland/Siglufjörður-580
79.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
24.500.000 kr.
Fermetraverð
308.564 kr./m2
Fasteignamat
17.350.000 kr.
Brunabótamat
36.500.000 kr.
Byggt 1947
3. hæð · efsta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2130561
Landnúmer
142670
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
ágætt
Raflagnir
ágætt
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ekki vitað
Þak
ágætt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
10,49
Upphitun
já
Inngangur
Sameiginlegur
Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Hvanneyrarbraut 60, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 03-02, fastanúmer 213-0561 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Hvanneyrarbraut 60 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0561, birt stærð 79.4 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.


Um er að ræða íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi við sjóinn með frábæru útsýni yfir fjallagarðinn. Íbúðin hefur verið gerð upp að hluta en eldhús og baðherbergi voru endurnýjuð fyrir nokkrum árum. Nýlegt gler er einnig í öllum gluggum og karmar lagaðir sem þurfti. Gengið er inn í anddyri með fatahengi og flísum á gólfi. Gangur er parketlagður með ljósu parketi. Eldhús er með ljósri viðar innréttingu og grárri borðplötu. Efri og neðri skápar eru í eldhúsi með flísum á milli, helluborði, háf, vask og ofn. Dökkur dúkur er á gólfinu. Stofa er rúmgóð með góðu gluggaplássi og parket á gólfi. Baðherbergi er flísalagt með mjög rúmgóðri sturtu, upphengdu klósetti, ljósri innréttingu með vask og stórum spegli. Svefnherbergin eru tvö bæði mjög rúmgóð með parket á gólfi. Annað er með stórum fataskápum. Geymsla er á neðstu hæð sem er tæpir 12m2 með opnanlegum gluggum og steyptu gólfi en vel er hægt að nýta sem svefnherbergi. Inngangur eignarinnar er af götu en stigagangur er flísalagður með steinflísum. 

Anddyri: flísalagt með góðu fatahengi. 
Eldhús: er með efri og neðri skápum úr ljósum við. Vaskur, helluborð og háfur er nýlegt. Dökkur dúkur er á gólfi. 
Svefnherbergi: eru tvö rúmgóð með parket á gólfi. Fataskápur eru í hjónaherbergi. 
Baðherbergi: er með flísum á gólfi og hluta af veggjum. Rúmgóð sturta er með mósaíkflísum og nýlegum blöndunartækjum. Klósett er upphengt með flísalögðum klósettkassa. Inrrétting er í ljósum við með stórum spegli. 
Geymsla: er á neðstu hæð eignarinnar og er hún mjög rúmgóð með opnanlegum glugga. Gólfið er steypt. 
Þvottahús: er á efstu hæð eignarinnar og er sameiginlegt með öðrum íbúum. Gott þurrkpláss er á efstu hæðinni. Gólf er steypt. 
Geymsluloft er einnig á efstu hæðinni fyrir alla íbúa eignarinnar.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Betri Stofan - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/10/20177.450.000 kr.11.900.000 kr.79.4 m2149.874 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala
https://www.betristofan.is

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hæðarland 14
Á einni hæð
Opið hús:14. okt. kl 18:00-18:30
Skoða eignina Hæðarland 14
Hæðarland 14
800 Selfoss
96,1 m2
Raðhús
413
717 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Hallgerðartún 51
Hallgerðartún 51
860 Hvolsvöllur
72 m2
Fjölbýlishús
312
631 þ.kr./m2
45.400.000 kr.
Skoða eignina Klukkurimi 57
Opið hús:15. okt. kl 17:00-18:00
Skoða eignina Klukkurimi 57
Klukkurimi 57
112 Reykjavík
89 m2
Fjölbýlishús
312
770 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Skoða eignina Reynidalur 3
Opið hús:11. okt. kl 13:00-14:00
Skoða eignina Reynidalur 3
Reynidalur 3
260 Reykjanesbær
97,9 m2
Fjölbýlishús
313
613 þ.kr./m2
59.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin