ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Fitjaás 14, 260 Reykjanesbær, birt stærð 181.3 fm.Glæsilegt og vel skipulagt fimm herbergja einbýlishús á einni hæð við Fitjaás 14 í Njarðvík. Húsið var byggt árið 2015 og er 181,3 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr 32,3 fm.
Skipulag eignar: Forstofa, samliggjandi eldhús, borðstofa og stofa, hjónaherbergi, tvö svefnherbergi, skrifstofa, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Þegar komið er úr fostofu birtast öll rými eignarinnar. Alrými er einstaklega rúmgott og bjart með aukinni lofthæð og gólfsíðum gluggum. Þaðan er gengið út á rúmgóðan sólpall til suðurs með útsýni. Nýlegur rafmagnspottur er á sólpalli. Gólfhiti er í húsinu og innfelld LED-lýsing í flestum rýmum.
** Opið og bjart alrými með aukinni lofthæð
** Gólfhiti og innfelld LED-lýsing
** Rúmgóður sólpallur til suðurs með útsýni og rafmagnspotti
** Baðherbergi og salerni
** Bílskúr með rafdrifnum hurðaopnara, innangengt úr þvottahúsiNánari lýsing:Forstofa: Flísar á gólfi og rúmgóður fataskápur.
Forstofusalerni: með handlaug og salerni.
Stofa og borðstofa: Einstaklega rúmgott og bjart rými með parketi á gólfi og gólfsíðum gluggum. Útgengt á sólpall til suðurs.
Eldhús: Opið við stofu og borðstofu, parket á gólfi. Viðarlituð innrétting með miklu skápaplássi, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur.
Baðherbergi I: Við forstofu. Flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni.
Baðherbergi II: Flísar á gólfi, rúmgóð innrétting með hvítri borðplötu, baðkar, sturta og upphengt salerni.
Hjónaherbergi: Einstaklega rúmgott, parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi III: Parket á gólfi og fataskápur.
Herbergi bílskúr: Inn af þvottahúsi, parket á gólfi. Útgengni út á baklóð.
Þvottahús: Flísar á gólfi, rúmgóð hvít innrétting og vaskur. Innangengt í bílskúr.
Bílskúr: 32,3 fm með sérinngangi og innangengt úr þvottahúsi. Flísar á gólfi, innrétting og rafdrifinn hurðaopnari.
Sólpallur: Snýr til suðurs með fallegu útsýni og nýlegum rafmagnspotti.
Golfhiti er í eigninni. Bílaplan er stórt. Eignin er viðhaldslétt, ytrabyrgði eignar er klætt með flísum.
Skoðuð skipti á eign í Innri-NjarðvíkVertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.