Fasteignaleitin
Skráð 2. ágúst 2026

Merkurhraun 9

SumarhúsSuðurland/Selfoss-803
149.7 m2
4 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
86.650.000 kr.
Brunabótamat
94.750.000 kr.
Mynd af Jón Smári Einarsson
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur
Byggt 2024
Garður
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2347045
Landnúmer
166428
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sólpallar
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita, lokað ofnakerfi
Inngangur
Margir inngangar
Gallar
Geymsluskúrin og gróðurhúsin tvö eru óskráð hjá byggingaryfirvöldum og stendur annað gróðurhúsið að hluta til fyrir utan lóðarmörk. Starfsmanni Fasteignalands hefur ekki verið bent sérstaklega á galla á eigninni.
Merkurhraun 9, glæsilegt, nýlegt 150 fm sumarhús með stórkostlega vel hannaðri 4.000 fm eignarlóð í landi Skálmholts í Flóahreppi.

Jón Smári Einarsson lgf. s. 860640 og Fasteignaland kynna eignina Merkurhraun 9, í landi Skálmholts í Flóahreppi, 803 Selfoss.

Í þessu húsi er steypt plata með hita í gólfi, lokuðu hitakerfi, forhitari fyrir neysluvatn og loftræstikerfi, útsog í votrýmum og innblástur í öðrum rýmum. Hiti er í hellulagðri gangstétt út að bílaplani.

Lýsing:
Rúmgott anddyri með flísum á gólfi með fatahengi og innfelldum ljósum í lofti. Frá andyri er gengið inn í sameiginlegt rými stofu og eldhúss. Stofan er opin og rúmgóð með fallegri frístandandi kamínu sem gefur notarlega stemmingu. Falleg innrétting er í eldhúsi með span-helluboðri. Í innréttingunni er tveir ísskápar með frystiskápum ásamt bökunar- og örbylgjuofni. Eikarparket á gólfi. Útgengt er frá alrými út á vestur sólpall
Svefnherbergin eru fimm, þrjú mjög rúmgóð og skemmtilega hönnuð á neðri hæð með gólfsíðum gluggum og tvö minni svefnherbergi á efri hæð með flóttaleið og neyðarstigum, þar eru grifjuofnar. Eikarparket er á gólfi allra svefnherbergja. Tvö baðherbergi, bæði með upphengdu salerni, vaski í innréttingu, handklæðaofni og "walk-inn" sturtu. Í stærra baðherberginu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar eru á gólfum og veggjum upp í loft. Gæsileg sauna með flísum á gólfi, fallegri kósý lýsingu og stórum glugga með skyggðu gleri. Af gangi sem er flisalagður er gengið út á lokaðan sólpall með hárri skjólgirðingu. Þar er heitur pottur með wifi hitastýringu og góð aðstaða til grilla og til sólbaða.
Parketlagður stigi er á milli hæða og eru þar skápar sem haganlega er fyrirkomið undir stiganum.

Geymsluskúr um 15 fm er á lóðinni. Tvö gróðurhús um 8 fm hvort þar við viðhliðina.
Vel hannað, hellulagt svæði með skjólgirðingu kring um fallegt eldstæði er á lóðinni.
Bílastæði er fyrir 4-5 bíla.Stór 4.000 lítra rotþró.

Árgjald sumarhúsafélags er um kr. 35.000. Í ár er sérstakt framkvæmdagjald kr. 30.000 og söfunun fyrir rafmagnshliði kr. 75.000. Möguleiki er að fá innbú keypt með eigninni utan persónulegra muna. 
Eignin Merkurhraun 9 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 234-7045, merkt 01-01, birt stærð 149.7 fm.

Staðsetning og nærumhverfi:
Merkurhraun 9 er í landi Skálmholts í Flóahreppi. Svæðið er vel staðsett og þaðan er stutt í fjölbreytta þjónustu á Selfossi, Flúðum og í Laugarási. Umhverfið einkennist af fallegu hraunlandslagi og lyngmóa og mikilli náttúrufegurð. Staðsetningin hentar því vel þeim sem vilja njóta friðsældar og náttúru án þess að vera langt frá daglegri þjónustu.

Þetta er virkilega falleg og vel umgengin eign á skemmtilegum stað stutt frá Selfossi.
Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að eignast stórglæsilegt hús og á sérlega fallegri eignarlóð.

SJÓN ER SÖGU RÍKARI - BÓKIÐ SKOÐUN í síma 8606400.


Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á. 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/07/20201.780.000 kr.3.800.000 kr.149.7 m225.384 kr.
08/05/2015688.000 kr.28.100.000 kr.113.7 m2247.141 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (100)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Klausturhólar (c-gata)
Klausturhólar (c-gata)
805 Selfoss
155.6 m2
Sumarhús
413
546 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarimi 12
Heitur pottur
Skoða eignina Heiðarimi 12
Heiðarimi 12
805 Selfoss
103.3 m2
Sumarhús
523
725 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 8
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Heiðarbraut 8
Heiðarbraut 8
805 Selfoss
50.8 m2
Sumarhús
312
726 þ.kr./m2
36.900.000 kr.
Skoða eignina Seljaland 10
Á einni hæð
Skoða eignina Seljaland 10
Seljaland 10
806 Selfoss
49.8 m2
Sumarhús
12
922 þ.kr./m2
45.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin