ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Einholt 6, birt stærð 177.0 fm. 4-5 svefnherbergja einbýlishús byggt úr timbri árið 1978 vel staðsett. Búið er að útbúa aðstöðu í bílskúr með salerni og herbergi.Vel við haldið hús með afgirtri lóð og flottum sólpalli. Leiktún er bakatil við hús og því gott útsýni frá stofu og palli. Leiksvæði sveitafélags er aftan við húsið. Góð fjölskyldueign sem bíður upp á möguleika.
Nánari upplýsingar veitir: Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.
Skipulag eignar er, forstofa, hol, þvottahús og geymsla, eldhús, stofa, herbergjagangur með fjórum svefnherbergjum og baðherbergi. Í bílskúr sem er 47 fm er búið að útbúa úr hluta hans herbergi og salerni. *** Þakjárn og þakkantur endurnýjað 2005
*** Skipt um parket og innihurðir 2019
*** Búið að endurnýja neysluvatnslagnir nema í eldhúsi
*** Búið að endurnýja hluta af hurðum og gluggum
*** Herbergi í bílskúr og þar er líka salerni
*** Stór og vandaður sólpallur ( Búið að gera ráð fyrir heitum pott, allar lagnir til staðar )
*** Frábær staðsetning
*** Leiksvæði / tún bakatil þar sem eru leiktæki fyrir litlubörnin. Körfubolta & fótboltavöllur.
Nánari lýsing eignar:Parket er á öllum rýmum íbúðar nema votrýmum og forstofu.
Sjá skipulag í teikningum.
Forstofa: Flísalögð með þreföldum skáp
Þvottahús og geymsla: Með innréttingum með skolvask. Lakkað golt. Inn af þvottahúsi er geymsla.
Eldhús: Er aflokað frá stofu, gengið frá holi. Góð birta frá gluggum og tvö opnanleg fög. Falleg viðarinnrétting með aðstöðu fyrir uppvöskunarvél. Flísar á milli og lýsing undir efriskápum.
Stofa: Mjög björt, með útgengni út á sólpall.
Baðherbergi: Flísalagt gólf, Innréttingar/skápar og upphengt salenri. Baðkar með sturtuhengi.
Þrjú barnaherbergi: Parketlögð.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum skápum og lýsingu í toppi.
Bílskur: Birt stærð 47 fm. Inngangshurð frá bílaplani, Bílskúrshurðaopnari, útgengt út á baklóð. Herbergi og salerni.
Umhverfi: Húsið stendur á 922 fm lóð. Hellulagðar gönguleiðir að framan, plan malarborið. Sólpallur er með fallegri brú og skrautmöl ásamt er gróður inn á milli sem gerir pallinn mjög fallegan. Sólarrafhlöðuljós eru á palli sem gefa þægilega kvöld birtu. Á lóð er snúrustaur og hellulagt undir. Lóðin sjálf er tyrfð og aflokuð að mestu.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.