Björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í snyrtilegu fjórbýlishúsi í Reykjavík. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, baðherbergi hefur verið nýlega endurnýjað ásamt parketi í íbúðinni. Íbúðin er miðsvæðis í borginni í jaðri Laugardalsins. Stutt er í skóla og leikskóla, Laugardalslaugina, líkamsrækt og einnig í öflugt barna- og unglingastarf Þróttar svo eitthvað sé nefnt.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 91,4 fm.
Nánari lýsing:Forstofa rúmgóð með fatahengi og flísum á gólfi.
Stofa björt og rúmgóð með parketi á gólfi.
Eldhús með rúmgóðum eldhúskróki, tengi fyrir uppþvottarvél, snyrtileg innrétting, flísar á vegg fyrir ofan neðri skápa, ofn í vinnuhæð og flísar í gólfi.
Gangur/hol með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með snyrtilegri innréttingu, glugga með opnanlegu fagi, handklæðaofn, baðkar með sturtuaðstöðu og flísar í hólf og gólf.
Geymsla er innan íbúðar
Þvottahús er í sameign hússins á hæð íbúðar.
Viðhald á húsinu í gegnum árin:Þak hússins var endurnýjað árið 2022.
Árið 2017 var húsið allt tekið í gegn að utan með steypuviðgerð og endursteiningu og þá var þakkantur steyptur upp á nýtt.
Stigagangur var einnig teppalagður og málaður árið 2017.
Skólp og dren var endurnýjað árið 2014 ásamt því að garðurinn var tekinn í gegn.
Vatns- og frárennslislagnir voru endurnýjaðar árið 2005 og yfirfarnar árið 2023.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Baldursson hdl og lgf. í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is eða Dana Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-1879 eða á netfenginu dana@trausti.is.