Mjög áhugavert og frábærlega staðsett
nýlegt einbýlishús á einni hæð með fjölbreytta nýtingarmöguleika Eigninni er í dag skipt upp í
tvær sjálfstæðar íbúðir, önnur 3ja en hin 4ra herbergja. Húsið er byggt úr forsteyptum einingum árið 2008 og stendur innst í botnlangagötu, ofan á kletti og með frábæru útsýni til suðurs, austurs og norðurs, inn Borgarfjörðinn, yfir sundin og víðar. Húsið skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö baðherbergi, þvottahús með inngangi og fjögur svefnherbergi (fimm með geymslu sem er nýtt sem herbergi). Stórt fjölskyldurými (stofa og eldhús) er einnig í vesturenda hússins. Húsinu hefur í dag verið skipt
upp í tvær sjálfstæðar íbúðir sem báðar eru með sérinngangi. Húsið þarfnast lokafrágangs hið innra og ytra á m.a. eftir að klæða þakkant og ganga frá lóð.
Nánari lýsing:
Eystri hluti: Komið er á flísalagða
forstofu. Innaf henni er flísalagður
gangur. Á vinstri hönd er parketlögð samliggjandi
stofa og borðstofa með uppteknum loftum með innfelldri lýsingu að hluta. Útgangur í garðinn úr stofu og einnig úr borðstofu. Samliggjandi er
eldhús með viðarinnréttingu, gleri í hluta efri skápa, eldaeyju með keramik helluborði og háfi yfir. Lögn er fyrir uppþvottavél í eldhúsi.
Hjónaherbergið er til vinstri af ganginum, parketlagt og með lausum skáp. Stórt
baðherbergi með flísum á gólfi og flísaplötum á veggjum. Hlaðinn sturtuklefi og aðstaða fyrir hornbaðkar sem þó hefur ekki verið sett niður. Innrétting, vegghengt salerni og lögn fyrir handklæðaofn Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Rúmgott parketlagt
herbergi (geymsla skv. teikningu).
Breyting frá samþykktum teikningum: Húsinu hefur í dag verið skipt upp með léttum vegg sem framlengir vegg á milli baðherbergja hússins og lokar þannig ganginum. Auðvelt að taka niður ef nýta á húsið sem einbýli á ný.
Vestari hluti: Þvottahúsið er flísalagt, með sérinngangi og hillum. Stórt
fjölskyldurými, eldhús og stofa samliggjandi með ágætri innréttingu. Upptekin loft og lýsing. Flísalagt
baðherbergi með flísaplötum á veggjum, vegghengdu salerni og innréttingu en án glugga.
Þrjú parketlögð herbergi, lausir skápar í einu þeirra.
Húsið er byggt úr forsteyptum steinuðum einingum frá Smellinn. Lagt er fyrir heitum potti við suð-vesturhlið að sögn eiganda. Húsið er á byggingarstigi 6 (fullgert án lóðarfrágangs) en matsstigi 7 (fullgerð bygging). Það er í útleigu, getur losnað eftir nánara samkomulagi með 3ja mánaða uppsagnarfresti, eða selst með leigusamningum.
Allar nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lgf. bjorn@midborg.is eða í síma 894-7070.