Fasteignaleitin
Skráð 14. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Smyrilshlíð 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
91.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
81.900.000 kr.
Fermetraverð
895.082 kr./m2
Fasteignamat
78.950.000 kr.
Brunabótamat
57.040.000 kr.
Mynd af Gunnar Sverrir Harðarson
Gunnar Sverrir Harðarson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2021
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2507487
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Númer íbúðar
6
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Svalir
yfirbyggðar svalir sem snúa í vestur með flott og gott útsýni m.a til sjávar og fjalla
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá nánar í yfirlýsingu húsfélags dagsett 20.08.2024 ásamt fylgigögnum, þ.e. aðalfundargerð frá 25.04.2023 og frá 04.04.2024
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:

Vel skipulögð og vel staðsett þriggja herbergja  91,5 fm. íbúð á 4. hæð með yfirbyggðar svalir sem snúa í vestur með flott og gott útsýni m.a til sjávar og fjalla. Sér stæði lokaðri í bílageymslu, merkt E075 fylgir íbúðinni. Íbúðin er skráð 91,5 fm., þar af er sér geymsla 8,7 fm.

Um er að ræða nýlegt og gott hús með lyftu, byggingarár hússins er 2021. Góður, fallegur og skjólgóður inngarður er á milli húsanna með gróðri, göngustígum, bekkjum og leiksvæði með leiktækjum.

Íbúðin skiptist í anddyri/gang, opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Tvö rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Útgengi er út á góðar yfirbyggðar svalir úr stofu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Harðparket á gólfum að undanskildu baðherbergi, þar eru flísar á gólfi.

Smelltu á link til að sjá íbúðina í 3-D

Bókið skoðun hjá: Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Nánari lýsing: 
Gengið er inn mjög snyrtilegan sameiginlegan inngang fyrir framan hús eða komið inn um bílageymslu. Íbúðin er á 4. hæð, komið er inn í anddyri/gang með hvítum fataskáp, þaðan er gengið inn í opið og bjart alrými með gólfsíðum gluggum. Alrými samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengi er út frá stofu út á góðar yfirbyggðar svalir sem snúa í vestur með flott og gott útsýni m.a til sjávar og fjalla. Eldhús er opið inn í stofu með hvítri innréttingu á vegg og eyju við vegg. Innfelldur ísskápur og innfelld uppþvottavél. Bökunar ofn er í vinnuhæð. Spanhelluborð og gott vinnu og borðpláss á eyju sem hægt er að setjast við. Svefnherbergin eru tvö, bæði björt og rúmgóð með hvítum fataskáp/fataskápum. Baðherbergi er með hvítri innréttingu með handlaug og skúffum þar fyrir neðan. Speglaskápur þar fyrir ofan með lýsingu í. Upphengt salerni og sturta með sturtugler þar við hlið ásamt handklæðaofni. Flísalagðir veggir við sturtu. Inn á baðherbergi er innskot fyrir þvottavél og þurrkara.

Sérgeymsla er staðsett í sameign um 8,7 fm. að stærð. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Sér bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúð ( merkt E075), grunnstöð til staðar fyrir rafmagnsbíla.
Sameiginlegur skjólgóður inngarður er á milli húsanna með gróðri, göngustígum, bekkjum og leiksvæði með leiktækjum.

Staðsetning er góð og eftirsótt í göngufæri við miðbæ Reykjavíkur á veitingahús, söfn, tónleika, sund eða niður á Tjörn. Íþróttaaðstaða Vals er við Hlíðarenda svæðið því stutt að fara fyrir börn og unglinga sem búa á svæðinu. Gönguleiðir um Öskjuhlíðina ásamt flottum hjólreiðaleiðum allt í kring. 

Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma 661-6056, gulli@remax.is 

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/09/20205.810.000 kr.58.800.000 kr.91.5 m2642.622 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 2020
Fasteignanúmer
2507487
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
E0
Númer eignar
75
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.240.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fálkahlíð 5, IB 229
Bílastæði
Fálkahlíð 5, IB 229
102 Reykjavík
82.8 m2
Fjölbýlishús
211
953 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 18
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 18
Smyrilshlíð 18
102 Reykjavík
81.8 m2
Fjölbýlishús
211
977 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 18 403
Bílastæði
Smyrilshlíð 18 403
102 Reykjavík
81.8 m2
Fjölbýlishús
211
977 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (229)
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (229)
102 Reykjavík
82.8 m2
Fjölbýlishús
211
953 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin