Fasteignaleitin
Skráð 8. ágúst 2026

Dynskógar 7

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
264 m2
9 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
179.800.000 kr.
Fermetraverð
681.061 kr./m2
Fasteignamat
159.150.000 kr.
Brunabótamat
136.700.000 kr.
Mynd af Óskar H. Bjarnasen
Óskar H. Bjarnasen
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1974
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2055036
Landnúmer
112938
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ofnalagnir endurnýjaðar af fyrri eiganda. Neysluvatnsl. nýlegt.
Raflagnir
Tenglar og rofar nýtt að mestu. Raflagnaefni og tafla yfirfarin 2025
Frárennslislagnir
Fóðrað að hluta.
Gluggar / Gler
Aldur óvitað. Ekki vitað um móðu eða sprungur.
Þak
Var skoðað 2024 og þá talið í lagi m.v. aldur
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestur svalir - S-A sólpallur
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita/Ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Ef nota á sturtu á neðri hæð þarf að gera við vatnshalla. Skipulag neðri hæðar eru ekki í samræmi við teikningar.
***EIGNIN VERÐUR SÝND ÞRIÐJUDAGINN 11. ÁGÚST Í EINKASÝNINGUM. VINSAMLEGA BÓKIÐ SKOÐUN***

Valhöll fasteignasala kynnir: glæsilegt, mikið endurnýjað og vel skipulagt 264 fermetra einbýlishús með tvöföldum bílskúr á gróðursælli lóð í rólegri botlangagötu. Húsið var nýlega gagngert endurhannað og innréttað á afar vandaðan og smekklegan hátt þar sem lagt var áherslu á að varðveita upprunalegan karakter hússins samhliða því að innleiða nútímalegri þætti. Voru meðal annars baðherbergi, gestasalerni, eldhús, gólfefni, raflagnaefni, endurnýjuð ásamt því að húsið var málað að innan. Alrými hússins er bjart með glugga á þrjá vegu og góðri lofthæð. Þaðan er gengið út á rúmgóðar, nýlega endurbættar, vestur svalir með fallegu útsýni. Garður er glæsilegur með stórri og skjólsælli viðarverönd til suðausturs. Fallegur og rúmgóður sólskáli með arni og nýlega endunýjuðu þakgleri. Stór hellulögð bílastæði á framlóð með hitalögnum undir. Um er að ræða sannkallað fjölskylduhús með 4-5 svefnherbergjum tveimur baðherbergjum auk gestasalernis og tvöföldum bílskúr sem er innangengur.

Bókið einkaskoðun hjá Óskari H. Bjarnasen fasteignasala / lögmanni í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is


Samkvæmt fasteignayfirliti HMS er íbúðarhlutinn skráður 223,3 m2 auk 40,7 m2 bílskúrs, alls 264 m2.

Lýsing eignar:
Gólfefni: Á gólfum forstofu, votrýma, sólskála og bílskúrs eru flísar en parket á efri hæð er einkar fallegt síldarbeina eikarparket á gólfi frá Mood Interiors, listalaust og lagt beint að vegg.
Aðalhæð hússins er skráð 187 m2 að stærð og skiptist þannig:
Forstofa: flísalögð og rúmgóð með fataskápum.
Gestasalerni: flísalagt, með glugga, upphengdu salerni og vaski. 
Forstofuherbergi/svefnherbergi I: parketlagt með góðum fataskápum. 
Alrými: samanstendur, stofu og borðstofu og eldhúsi. Alrýmið er bjart og opið með glugga á þrjá vegu og góðri lofthæð. Gengið er út á stórar vestur svalir sem eru nýlega filtaðar og með nýju fallegu handriði.
Eldhús: er einkar glæsilegt með sérsmíðuðum Scavolini innréttingum frá Mood Interiors. Á borðum er Sapienstone steinplata frá Mood Interiors. Vönduð elhústæki. Innbyggð hljóðlát uppþvottavél og ísskápur/frystiskápur með aukinni breidd frá Siemens. Spanhelluborð og vínkælir.
Svefnherbergisgangur: af svefnherbergisgangi er gengið inn á baðherbegi, hjónaherbergi, tvö svefnherbergi og glæsilega sólstofu. Á teikningu eru svefnherbergin á ganginum þrjú en búið er að sameina tvö herbergjanna í eitt stórt. Alls eru því fjögur rúmgóð svefnherbergin í húsinu í dag að, meðtöldu forstofuherbergi, en auðvelt er að bæta við fimmta svefnherberginu með að setja upp vegg milli tveggja herbergja.
Hjónaherbergi: parketlagt og rúmgott með góðum fataskápum.
Baðherbergi: er endurnýjað og einkar glæsilegt. Baðherbergið er með glugga, baðkari, sturtu, upphengdu salerni og góðri innréttingu.
Svefnherbergi II: er mjög rúmgott og parketlagt.
Svefnbergi III: parketlagt og rúmgott með góðum fataskápum og góðri lofthæð. Gengið er úr svefnherberginu út á góða suðaustur verönd og þaðan út í fallegan og gróinn garðinn.
Sólskáli: rúmgott og afar skemmtilegt rými til að skapa fallegar og skemmtilegar minningar með fjölskyldu og vinum. Þar er að finna arinn og hægt er að ganga niður tröppur beint út í garð. 
Búr/þvottahús: liggur við eldhús. Útgegnt er þaðan út í garð. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vinnuborð með vaski og góðir skápar. Úr þvottahúsi er gengið niður hingstiga niður á neðri hæð hússins.

Neðri hæð hússins er skráð 77 m2 að stærð, þar af er bílskúr skárður 40,7 m2 og íbúð 36,6 fm. Neðri hæðin skiptist nánar á eftirfarandi hátt:
Hol: Þegar komið er niður stiga er gengið inni í hol sem leiðir að baðherbergi, herbergi í kjallara/geymslu og bílskúr. Sérinngangur er á neðri hæð inn í holið frá hlið hússins.
Íbúðarherbergi/geymsla er gluggalaust, mjög rúmgott rými með parketi á gólfi.
Baðherbergi: flísalagt með einfaldri innréttingu, klósetti og sturtu. 
Bílskúr: er tvöfaldur með gluggum, heitu og köldu vatni, vaski og vinnuborði. flísum á gólfi. Bílskúrshurðar eru nýlegar með rafdrifnum hurðaopnurum.

Lóðin er skráð 771 m2 að stærð með hellulagðri innkeyrslu. Hitalagnir eru undir bílaplani. Útitröppur eru steyptar með hitalögnum undir. Garðurinn er einstaklega fallegur og hefur verið haldið vel við í gegnum árin.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í mjög rólegu, friðsælu og grónu umhverfi mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í alla þjónustu, m.a. í Mjóddina, auk þess er íþróttasvæði ÍR og skólar örstutt frá. Heilt yfir er um að ræða mikið endurnýjað, fallegt og vel skipulagt einbýlishús í eftirsóttu hverfi.

Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits:   
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/10/2024144.300.000 kr.139.900.000 kr.264 m2529.924 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (57)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Dehesa de Campoamor
Bílskúr
SPÁNAREIGNIR - Dehesa de Campoamor
Spánn - Costa Blanca
245 m2
Einbýlishús
433
882 þ.kr./m2
216.000.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Dehesa de Campoamor
Bílskúr
SPÁNAREIGNIR - Dehesa de Campoamor
Spánn - Costa Blanca
276 m2
Einbýlishús
544
814 þ.kr./m2
224.750.000 kr.
Skoða eignina Eikardalur 6
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Eikardalur 6
Eikardalur 6
260 Reykjanesbær
257.5 m2
Einbýlishús
524
531 þ.kr./m2
136.700.000 kr.
Skoða eignina Neðstaberg 8
Opið hús:13. ágúst kl 18:00-18:30
Skoða eignina Neðstaberg 8
Neðstaberg 8
111 Reykjavík
263.3 m2
Fjölbýlishús
725
550 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin