Fasteignaleitin
Skráð 10. nóv. 2023
Deila eign
Deila

Vesturbakki 5

Atvinnuhúsn.Suðurland/Þorlákshöfn-815
68.2 m2
1 Baðherb.
Verð
19.900.000 kr.
Fermetraverð
291.789 kr./m2
Fasteignamat
9.940.000 kr.
Brunabótamat
20.750.000 kr.
Byggt 2023
Sérinng.
Fasteignanúmer
2520218
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
5
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163 netfang: bjarni@remax.is) kynnir geymsluhúsnæði að Vesturbakka 5, á besta stað við höfnina í Þorlákshöfn

Nánari lýsing: Húsið skiptist í 12 einingar, 67,3 - 68,2 m2 að birtu flatarmáli. Allar einingar eru með ræstivask og salerni. Byggingin er á einni hæð. Lóðin verður malbikuð, gert ráð fyrir einu bílastæði fyrir framan hverja starfseiningu.


Uppbygging húss: Húsið er byggt ofan á steypta sökkla.
Gólfplata: Hefðbundin staðsteypt plata, einangruð að innan með gólfhita. Neysluvatnslagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningm, rör í rör.
Útveggir/ þak / þakkantur / burðarvirki:
Allir útveggir og þak hússins eru úr yleiningum, samlokueiningar frá Kingspan. Burðarvirki er límtré. Litur klæðninga að utanverðu er RAL7016 og að innan RAL 9010. Þakkantur er einfaldur, stálklæddur í sama lit og þakefni með utanáliggjandi álrennum og niðurfallsrörum í sama lit. Mænishæð er 6,5 metrar.
Gluggar og hurðir: Iðnaðarhurðir eru frá viðurkenndum og þekktu framleiðanda í góðum gæðum, 380cm x 380cm, litur RAL 7016, og rafmótoropnun. Gönguhurðir og gluggar eru úr viðhaldsfríu PVC plasti með tvöföldu einangrunargleri. Litur RAL 7016.
Frárennslis og neysluvatnslagnir: Skólp‐ og regnvatnslagnir eru fullfrágengnar og tengdar fráveitukerfi í götu. Salerni eru fullfrágengin í hverri starfseiningu. Gólfniðurfall er fyrir innan allar innkeyrsluhurðir. Deilikistur fyrir neysluvatn frágengnar í hverri starfseiningu og tengt úr henni í viðkomandi viðtaka: salerni og mögulega eldhúsinnréttingu undir stiga. Brunaslanga frágengin og tengd. Niðurföll af malbikuðum plönum frágengin og tengd fráveitukerfi.
Hitakerfi: Gólfhitakerfi sem er innsteypt í botnplötuna á járnagrind komið í hverja starfseiningu, deilikista með hringrásarkerfi tengd í hverri einingu. Kerfi stjórnað með handvirkum ofnloka.
Rafmagn: Aðaltafla með mælum fyrir hverja starfseiningu frágengin í inntaksrými. Greinatafla frágengin í hverri starfseiningu með einum þriggja fasa tengli við hliðina. Tenglar á nokkrum stöðum í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagnahönnuðar. Full lýsing (LED) í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagnahönnuðar sem uppfyllir viðkomandi reglur. Raflagnir lagðar í aðgengilegum kapalstigum, auðvelt er að breyta ljósum, slökkvurum, tenglum og slíku ef þurfa þykir. Útiljós við hurðir á hverri starfseiningu sem hægt er að stjórna frá viðkomandi einingu og tengist viðkomandi mæli (ekki sameign). Gert er ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla við hverja einingu.
Lóð: Lóð afhendist malbikuð. 
Virðisaukakvöð hvílir á húsinu. Ef kaupandi yfirtekur vsk kvöð er verðið 19,9 milljónir. EF Kaupandi tekur EKKI yfir vsk kvöð er verðið 22,6 milljónir.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0,3% af væntanlegu brunabótamati.

Byggingin verður í notkunarflokki 1. samkv. byggingareglugerð en um er að ræða geymslur í þeim flokki. Skil hússins miðast við ÍST51:2021 BS4 – Fullgerð bygging. A:T:H þetta er nýr staðall um skil á byggingarstigum húsa. 

Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Blöndal, löggiltur fasteignasali í síma: 662-6163 eða á email: bjarni@remax.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/08/20239.940.000 kr.39.000.000 kr.135.5 m2287.822 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2023
Mynd af Bjarni Blöndal
Bjarni Blöndal
Löggiltur fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturbakki 3, GEYMSLUR - HOBBÝBIL
Vesturbakki 3, GEYMSLUR - HOBBÝBIL
815 Þorlákshöfn
66 m2
Atvinnuhúsn.
1
303 þ.kr./m2
20.000.000 kr.
Skoða eignina Vesturbakki 3
Skoða eignina Vesturbakki 3
Vesturbakki 3
815 Þorlákshöfn
65.4 m2
Atvinnuhúsn.
1
304 þ.kr./m2
19.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturbakki 3
Skoða eignina Vesturbakki 3
Vesturbakki 3
815 Þorlákshöfn
65.3 m2
Atvinnuhúsn.
1
305 þ.kr./m2
19.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturbakki 3
Skoða eignina Vesturbakki 3
Vesturbakki 3
815 Þorlákshöfn
65.4 m2
Atvinnuhúsn.
1
304 þ.kr./m2
19.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache