Fasteignaleitin
Skráð 30. jan. 2026

Burknavellir 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
92.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.900.000 kr.
Fermetraverð
724.026 kr./m2
Fasteignamat
70.750.000 kr.
Brunabótamat
58.230.000 kr.
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2262518
Landnúmer
192346
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+málmur
Númer hæðar
03
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Einn gluggi nýr, annað upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Björt og vel skipulögð 3-4ra herbergja endaíbúð með stæði í bílageymslu
Falleg 92,4 fm 3-4ra herbergja endaíbúð á 3. hæð í lyftuhúsi, með gluggum í þrjár áttir sem gefa íbúðinni góða birtu. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu og aðgengi er gott að allri helstu þjónustu.

-  Stæði í bílageymslu
-  Endaíbúð með góðri birtu
-  Þrjú herbergi
-  Sutt í skóla, leikskóla og íþróttasvæði


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde, löggiltur fasteignasali, í síma 660-5532 eða á netfangið tinna@haborg.is.

Eignin er laus við kaupsamning. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð forstofa með parketi á gólfi. 
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með parketi á gólfi og útgengi á svalir til suðurs sem bjóða upp á góða nýtingu yfir sumartímann.
Eldhús: Eldhús er parketlagt og með snyrtilegri innréttingu, góðu vinnuplássi og opnu flæði að stofu. Ný borðplata er í eldhúsi. 
Svefnherbergi: Herbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi. Fataskápar eru í hjónaherbergi en opið hillurými í hinum herbergjunum. Eitt herbergi er skráð sem geymsla skv. teikningum en nýtist vel sem herbergi. 
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með innréttingu undir vask, hillum og baðkari með sturtu.
Þvottahús: Sér þvottahús með flísum á gólfi, vinnuborði, vask og hillum.

Athuga að mynd í auglýsingu hefur verið unnin með stafrænum hætti (gervigreind) til að sýna möguleika á nýtingu rýmis. 

Geymslur og sameign
Geymsla fylgir í sameign, auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu í bílakjallara.

Hús og umhverfi
Sameign er snyrtileg og hefur fengið gott viðhald. Nýlegt myndavélakerfi er í geymslugöngum og bílageymslu. Undirbúningur er fyrir hleðslustöðvar við bílastæði og þegar hafa verið settar upp fjórar hleðslustöðvar (tveir staurar með tveimur tengjum hvor). Stutt er í alla helstu þjónustu og íþróttasvæði Hauka nánast í bakgarðinum, auk skóla og leikskóla í göngufæri.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2004
Fasteignanúmer
2262518
Byggingarefni
St+málmur
Númer hæðar
B0
Númer eignar
8
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.930.000 kr.

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dúfnahólar 2
Bílskúr
Opið hús:27. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Dúfnahólar 2
Dúfnahólar 2
111 Reykjavík
134.3 m2
Fjölbýlishús
413
633 þ.kr./m2
85.000.000 kr.
Skoða eignina Eiríksgata 15
Skoða eignina Eiríksgata 15
Eiríksgata 15
101 Reykjavík
98.4 m2
Fjölbýlishús
312
863 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Hrafnaborg 5
Skoða eignina Hrafnaborg 5
Hrafnaborg 5
190 Vogar
102.7 m2
Fjölbýlishús
312
633 þ.kr./m2
65.000.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarholt 17 - 405
Bílastæði
Bjarkarholt 17 - 405
270 Mosfellsbær
92.9 m2
Fjölbýlishús
312
914 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin