Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Fasteignasalan Hlíðarhorn kynnir: Valshlíð 3 - Íbúð 505.
Rúmgóð og stórglæsileg 2ja herbergja þakíbúð með útsýni. Birt stærð er 85,5 fm þar af 8,7 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 1. Íbúðin er fyrir 50 ára og eldri.
Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er úr anddyri beint inn í glæsilegt alrými, eldhús með eyju og stofu/borðstofu með útgengi á rúmgóðar útsýnissvalir (vestur). Taupe grá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur. Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, taupe grá innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Innan af baði er þvottaherbergi með ljósri inntéttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Grár steinflísar á gólfi þvottaherbergis. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0044. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
Afhending íbúðar: Gert er ráð fyrir fyrstu afhendingu íbúða í Valshlíð 3 í lok mars 2025.
Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins.
Athygli kaupenda er vakin á því að fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu S8 ehf. sem er jafnframt aðalverktaki og eigandi fasteignarinnar.
Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt þ.e 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Önnur gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
102 | 77.5 | 101,9 | ||
102 | 84 | 109,9 | ||
102 | 83.9 | 102,9 | ||
102 | 84 | 115,9 | ||
102 | 102.9 | 114,9 |