Fasteignaleitin
Skráð 14. ágúst 2024
Deila eign
Deila

Birkivellir 3

FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
83.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
43.800.000 kr.
Fermetraverð
527.076 kr./m2
Fasteignamat
36.500.000 kr.
Brunabótamat
37.650.000 kr.
Mynd af Loftur Erlingsson
Loftur Erlingsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1956
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2185578
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Óþekkt en virkni eðlileg
Raflagnir
Óþekkt en virkni eðlileg
Frárennslislagnir
Óþekkt en virkni eðlileg
Gluggar / Gler
Gler endurnýjað fyrir nokkru
Þak
Ryðblettir
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita/ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Loftur Erlingsson lgf s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Góð þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í eldra tvíbýli á frábærum stað á Selfossi. 

Fallegur garður og stutt í alla þjónustu.
Komið er inn í sameiginlega forstofu efri hæðar og íbúðarinnar á jarðhæð sem hér er kynnt til sölu. Steypur stigi upp en góð geymsla fyrir jarðhæðina undir stiganum og læstar dyr inn í íbúðina. Þar er komið í skála og borðkrók á vinstri hönd og eldhúsið þar í framhaldi, þvottahúsið inn af því eina tröppu niður og þaðan gengt út í garð baka til. Úr skála er gangur inn íbúðina, stofa á hægri hönd og minna herbergið inn af henni, stærra svefnherbergið og baðherbergið innst á ganginum.  Í eldhúsinu er tvenns lags innrétting, sú dökka eldri en hinni bætt við fyrir nokkrum árum til að auka vinnu- og skápapláss. Flísar á gólfi eldhúss og baðherbergis en annars plastparket á borðkrók, gangi, stofu og herbergjum. Stofan er björt og með útskotsglugga og gott herbergi inn af henni.  Hitt svefnherbergið innst á ganginum og góðir fataskápar þar. Baðherbergið flísalagt og með hornsturtuklefa, handklæðaofni, handlaug á nettum skáp, háum skáp og klósetti. Hátt til lofts í þvottahúsinu og töluvert geymslupláss í hillum, gólfið málað. Öll er íbúðin snyrtileg og vel um gengin. 
Að utan er húsið klætt með PVC klæðningu, hurðir og gluggar úr tré en gler í gluggum var endurnýjað fyrir einhverjum árum. Þakið orðið ryðgað og kominn tími á að endurnýja það. Garðurinn er fallegur og vel hirtur, matjurtabeð á bak við hús og kaldur skúr en blóm og tré framan við húsið og möl í innkeyrslu. 

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    loftur@husfasteign.is  

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/05/201814.500.000 kr.22.800.000 kr.83.1 m2274.368 kr.
27/04/201814.500.000 kr.22.000.000 kr.83.1 m2264.741 kr.Nei
19/02/200711.505.000 kr.14.600.000 kr.83.1 m2175.691 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina ÁLFTARIMI 22
Skoða eignina ÁLFTARIMI 22
Álftarimi 22
800 Selfoss
85.7 m2
Raðhús
312
502 þ.kr./m2
43.000.000 kr.
Skoða eignina Bæjarholt 2
Skoða eignina Bæjarholt 2
Bæjarholt 2
806 Selfoss
79.5 m2
Einbýlishús
43
527 þ.kr./m2
41.900.000 kr.
Skoða eignina Faxastígur 18
Skoða eignina Faxastígur 18
Faxastígur 18
900 Vestmannaeyjar
82.7 m2
Einbýlishús
312
550 þ.kr./m2
45.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin