Fasteignaleitin
Opið hús:03. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 31. ágúst 2026

Sóltún 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
79.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.900.000 kr.
Fermetraverð
930.730 kr./m2
Brunabótamat
52.400.000 kr.
Byggt 2000
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22504931
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignsali kynna góða eign í einkasölu við Sóltún 5 í Reykjavík. Um er að ræða rúmgóða 2ja herbergja íbúð í lyftu húsi með stæði í lokaðri bílageymslu.
*** Gott verð - laus við kaupsamning ***

Húsið Sóltún 5 er steypt fjölbýlishús á 7 hæðum með lokuðum bílakjallara og lyftu. Eignin sem er skráð 0201 er á annarri hæð, birt stærð er 79,4 fm. skvæmt fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 74,5 fm. geymsla 4,9 fm., önnur geymsla ca 3-4 fm. er ekki inni í birtri stærð eignarinnar, sama á við um yfirbyggðar s-austur svalir sem eru 6,7 fm.
Íbúðin er vel skipulögð og björt með góða gluggum.
Komið er inn í opna forstofu/hol með góðum fataskápum upp í loft.
Þvottahús er á hægri hönd, næst forstofunni, það er með vinnubekk, skolvask og góðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, innréttingu með handlaug og speglaskáp og baðkari með upphengdri sturtu.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum sem ná alveg upp í loft.
Opið alrými með góðri stofu, borðstofu og eldhúsi er bjart enda gluggar á tvo vegu auk þess sem svalirnar eru á horni hússins með gluggum sem snúa í suður og austur.
Rúmgóð setustofa og borðstofa tengjast eldhúsinu - gengið er út á svalir frá borðstofunni.
Eldhúsið er með viðarinnréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, ljós undir efri skápum og gott bekkpláss og vinnurými í eldhúsi.
Svalirnar eru skemmtilega staðsettar á suð-austur horni hússins, þær eru yfirbyggðar þannig að þær nýtast allan ársins hring.
Á gólfum íbúðarinnar er parket en flísar í baðherbergi og þvottahúsi.
Allar innréttingar og skápar eru í sama stíl, íbúðin er mjög vel um gengin og í góðu ástand i eins og húsið sjálft.
Sameign er til fyrirmyndar og vel hugsað um hana, þar er nýlega endurnýjuð lyfta og húsið sjálft og umhverfi þess líta vel út.
Í sameign í kjallara eru tvær geymslur sem tilheyra þessari eign, annarsvegar geymsla sem er 4,9 fm. og hluti af birtri stærð eignarinnar og hinsvegar 3-4 fm. geymsla með hillum meðfram öðrum langveggnum, sú geymsla er merkt íbúðinni en telst ekki inni birtri stærð.
Eigninni fylgir einnig vel staðsett stæði í bílakjallara merkt B-49. Í bílakjallaranum er búið að tengja dreifkerfi fyrir rafhleðslu bíla.
Þetta er björt og falleg íbúð í góðu fjölbýlishúsi - staðsett afar miðsvæðis með tilliti til verslunar, þjónustu og góðra samgangna, gönguleiðir inn í Laugardal, meðfram sjónum eða í miðbæ Reykjavíkur liggja í gegnum hverfið.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Esja fasteignasala
www.esjafasteignasala.is

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kelduland 5
Opið hús:03. sept. kl 18:00-18:30
Skoða eignina Kelduland 5
Kelduland 5
108 Reykjavík
85.7 m2
Fjölbýlishús
312
956 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 315
Hleðslustöð
Opið hús:03. sept. kl 16:30-17:00
Laugaborg íbúð 315
105 Reykjavík
82.8 m2
Fjölbýlishús
312
1039 þ.kr./m2
86.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 211
Hleðslustöð
Opið hús:03. sept. kl 16:30-17:00
Laugaborg íbúð 211
105 Reykjavík
101.2 m2
Fjölbýlishús
312
1007 þ.kr./m2
101.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 33
Skoða eignina Mýrargata 33
Mýrargata 33
101 Reykjavík
91.4 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin