
Viltu fasteignasala kynnir hlýlega og sjarmerandi þriggja herbergja íbúð í fallegu timburhúsi við Vesturgötu 26A í hjarta Reykjavík.
Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er íbúðin 92,9 m2 á tveimur hæðum.
Íbúðin býður upp á fallegt og notalegt rými og skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Samúelsson, löggiltur fasteignasali í síma: 7770191 eða tölvupósti: Kristjan@viltu.is
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Nánari lýsing:
Íbúðin er aðgengileg bæði um sameiginlegan inngang framan við húsið og um sérinngang að aftanverðu.
Gengið er inn um sérinnganginn í litla og hlýlega forstofu með flísum á gólfi og góðu fatahengi. Við hlið forstofunnar er gestasnyrting sem tekin var í gegn árið 2024.
Úr forstofunni opnast rúmgott og bjart rými þar sem eldhús og borðstofa mynda eina heild. Eldhúsið hægra megin og borðstofan vinstra megin. Eldhúsinnréttingin er hvít og er L-laga með bæði efri og neðri skápum, auk flísa á milli skápa.
Við hlið eldhússins er rúmgott svefnherbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Stofan er björt og opin með parket á gólfi og tengist vel öðrum rýmum hæðarinnar. Úr stofunni liggur teppalagður stigi niður á neðri hæð, þar sem er stórt herbergi sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, til dæmis sem svefnherbergi, fataherbergi eða vinnuherbergi.
Á neðri hæðinni er einnig nýlega uppgert baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni og opnum sturtuklefa ásamt handklæðaofn.
Gólfefni á neðri hæð er parket að undanskildu baðherberginu sem er flísalagt.
Innangengt er af neðri hæð í sameiginlegt þvottahús í kjallara, þaðan sem er aðgengi að sér geymslu sem fylgir eigninni.
Húsið stendur á eignarlóð. Fyrir aftan húsið eru þrjú bílastæði, sameiginlegur sólpallur, grasblettur og gróðurbeð. Eitt bílastæði fylgir eigninni samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.
Upplýsingar frá seljanda:
2013= Húsið drenað.
2022= Nýr tengill settur í geymslu fyrir frystiskáp.
2023= Parket uppi slípað og lagfært.
2024= Nýir gluggar og tréverk á gluggum utan frá.
2024= Nýtt teppi á stigann.
2024= Ný útidyrahurð.
2024= Litla salernið tekið í gegn.
2024= Andyrið tekið í gegn og flísalagt.
2025= Aðalbað tekið í gegn(rafmagns-,skólp-, og neysluvatnslagnir endurnýjaðar).
2025= nýjar hurðar niðri.
2025= Skólplögn frá húsi og út að götu og brunnur settur.
2025=Stigi að framan uppgerður og nýjar rennur að framan.
2026= Skipt um fúnar spýtur í palli að aftan.
2026= Sprungufyllt í grunn hússins og hann málaður.
2026= Gólf í sameign málað með skipalakki.
Ár óvitað= Annar gafl hússins er með nýja báru, ekki er vitað hvenær hún var sett á.
2026= Nýtt ruslaskýli
Gallar:
-Lausar flísar í andyri og baðherbergi uppi, eigendur til í að lagfæra það fyrir afhendingu á þeirra kostnað.
-Mygla fannst á baðherbergi niðri sem var öll fjarlægð og hafa allir veggir verið mældir fyrir raka og myglu og ekkert fundist.
-Silfurskottur fundust við okkar kaup og var eitrað fyrir þeim og ekkert bólað á þeim síðan.
-Bára utan á húsinu er farin aðeins að láta á sjá, en alls ekki ónýt og því ekki fyrirhugað að skipta henni út í bráð.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 28/09/2022 | 49.600.000 kr. | 58.500.000 kr. | 92.9 m2 | 629.709 kr. | Já |
| 01/03/2016 | 32.150.000 kr. | 37.000.000 kr. | 92.9 m2 | 398.277 kr. | Já |
| 20/11/2009 | 18.990.000 kr. | 22.000.000 kr. | 92.9 m2 | 236.813 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
101 | 92,9 | 79,9 | ||
105 | 104 | 106,9 | ||
105 | 104 | 106,9 | ||
105 | 110,5 | 106,9 | ||
105 | 110,5 | 106,9 | ||
105 | 98,1 | 98,9 |