Fasteignaleitin
Opið hús:24. ágúst kl 18:00-18:30
Skráð 1. ágúst 2026

Vallarhús 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
120.2 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
85.500.000 kr.
Fermetraverð
711.314 kr./m2
Fasteignamat
83.400.000 kr.
Brunabótamat
57.200.000 kr.
Mynd af Ingibjörg Reynisdóttir
Ingibjörg Reynisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1990
2. hæð
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2040729
Landnúmer
109719
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Upprunalegir að hluta
Þak
Málað í sumar 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Björt 5 herbergja íbúð með sérinngangi á 2 hæð. Vandað og gott hús á góðum stað í Grafarvogi þar sem mjög stutt er í alla helstu þjónustu,
leikskóla, skóla, sundlaug, íþróttamiðstöð og verslun.

* Sérinngangur 
* 4 svefnherbergi
* Baðherbergi
* Suðursvalir 


Nánari upplýsingar
Inga Reynis lgf í síma 820-1903,  inga@palssonfasteignasala.is og 
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000, palli@palssonfasteignasala.is


Íbúðin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 120,2 fm
Fasteignamat 2026 er 83.400.000 mkr.

Íbúðin skiptist í góða samliggjandi stofu og borðstofu ( sem er núna notað sem svefnherbergi) , eldhús, gesta snyrtingu og geymslu á neðri hæðinni.
Á efri hæðinni eru þrjú svefnherbergi ásamt mjög rúmgóðu baðherbergi. Í risi er gott parketlagt herbergi með glugga sem ekki er skráð í fermetrafjölda.


Nánari lýsing
Neðri hæð.
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi.
Geymsla gengið er inn í hana frá forstofu, hillur á veggjum, opnanlegur gluggi. Flísar gólfi.
Eldhús er bjart með stórum glugga með útsýni yfir Esjuna. Hvít innrétting og gott skápapláss,  parket á gólfi. 
Stofa er með útgengni er á góðar nýuppgerðar svalir sem snúa í suður.  Parket á gólfi.
Borðstofa er í dag með léttum millivegg er notað sem svefnherbergi en auðvelt að breyta því aftur í borðstofu. Parket á gólf.
Gestasnyrting er snyrtileg, vaskur, spegill og upphengt salerni. Flísar á gólfi.

Efri hæð:
Hjónasvefnherbergi er rúmgott,  góður fataskápur og parket á gólfi.
Svefnherbergi er gott herbergi með fataskápum. Lítið undir súð og parket á gólfi.
Svefnherbergi er bjart herbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi er sérstaklega rúmgott og bjart, gott skápapláss, innrétting og tengi fyrir þvottavél ásamt þurrkara.
Ris herbergi er óskráð rými sem er í dag notað sem svefnherbergi. Opnanlegur gluggi, hljóðdempari plötur og parket á gólfi.

Framkvæmdir undanfara ára að sögn seljenda:
2025 Settar hljóðdempari plötur í ris herbergið.
2024 Sett drenlögn við austanverðan gafl hússins.
2024 Nýjar svalir 
2022 Þakið málað 
2021 Settur nýr vaskur, skápur og blöndunartæki.
2021 Sett ný eldhúsinnrétting 
2021 Settur léttur millivegur í borðstofuna ( er í dag svefnherbergi en auðvelt að breyta aftur )
2021 Nýtt gólfefni á eldhúsið og baðherbergið niðri.

Tvö merkt bílastæði fylgja eigninni.

Um er að ræða virkilega vel skipulagða og góða eign í Grafarvoginum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu t.a.m. leikskóla, skóla, sundlaug, íþróttamiðstöð, verslun o.m.fl. 



Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/09/202149.350.000 kr.58.500.000 kr.120.2 m2486.688 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kristnibraut 95
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Kristnibraut 95
Kristnibraut 95
113 Reykjavík
110.7 m2
Fjölbýlishús
413
722 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Naustabryggja 54-56
Opið hús:26. ágúst kl 16:15-16:45
Naustabryggja_54-42.jpg
Naustabryggja 54-56
110 Reykjavík
131.7 m2
Fjölbýlishús
423
713 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Veghús 25
Hleðslustöð
Skoða eignina Veghús 25
Veghús 25
112 Reykjavík
124.7 m2
Fjölbýlishús
413
681 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Sóleyjarimi 5
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Sóleyjarimi 5
Sóleyjarimi 5
112 Reykjavík
99 m2
Fjölbýlishús
312
847 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin