Erling Proppé lgf. & RE/MAX kynna vönduð 74,5 m2 geymslubil á frábærri staðsetningu aðeins í 1-2 mín fjarlægð frá Reykjanesbrautinni, Stálhellu 18 í Hafnarfirði.
Hafið samband til að fá nánari upplýsingar eða farðu á söluvefinn www.stalhella.is
Erling Proppé .lgf // 690-1300 // erling@remax.is
- VANDAÐUR OG TRAUSTUR BYGGINGARAÐILI -Helstu atriði:Engin virðisaukaskattskvöð! (Möguleiki er að setja hana á fyrir aðila sem vilja og eru í virðisaukaskattsskyldri starfsemi)
Afgirt svæði með 2 aðgangsstýrðum hliðum og öryggismyndavélakerfi
160 mm steinullar þak einingar, 120mm útveggjum og 100mm í innveggjum (C4 tæringarflokkur að utan, C2 innan) betri hljóð- og varmaeinangrun
11m djúpt og 6,5m breitt
Tæpir 8m í mæni og tæpir 6,5m í útvegg.
Möguleiki á millilofti yfir allt bilið.
Hágæða epoxy gólf með gólfhita
Sér rafmagnsmælir fyrir hvert bil – borgaðu aðeins fyrir það sem þú notar.
Hágæða ál hurðir og gluggar frá Raynaers
Bílskúrshurð 3,5m á breidd og 3,2m á hæð, ásamt öxuldrifnum hurðaopnara frá Wisniowski (C4 tæringarflokkur að utan, C2 innan)
Lagt inn í hvert bil fyrir interneti
Frábært aðgengi að svæðinu aðeins 1–2 mínútur frá Reykjanesbraut
Tæknileg lýsing:MilliloftAth. Ekkert milliloft er í þessum húsum, húsið er samt sem áður burðarlega hannað til að vera með milliloft yfir allt bilið, allar festingar til staðar í stálvirki. Vilji kaupandi setja upp milliloft og skrá það þarf hann að gera það og sækja um leyfi fyrir því hjá viðeigandi stofnunum eftir lokaúttekt á sína ábyrgð.
Burðarvirki, veggir & þak Húsin eru úr stálgrind, á staðsteyptum sökklum. Útveggir eru úr 120mm þykkum samlokueiningum og milliveggir í 100mm þykkt, þær eru úr harðpressaðri steinull 100kg./m3 klædd með 0,6mm þykku alumzinki í RAL7016 anthracite gráum að utan, RAL9010 (Pure white) að innan. Einingarnar koma í tæringarflokki C4 að utan en C2 að innan. Þak er gert úr 160mm þykkum steinullareiningum (harðpressuð steinull 100kg/m3) með tvöföldu bræddu lagi af IKO pappa frá Þaktak ehf. sem veitir 10 ára ábyrgð, RAL9010 (Pure white) að innan.
PípulagnirLagnir eru utanáliggjandi og sýnilegar, skolvaskur verður uppsettur með heitu og köldu vatni og gólfhiti til upphitunar. Skólp stammi fyrir salerni verður í gólfi í báðum hornum í enda bilsins. (Salerni ekki uppsett) Gert er ráð fyrir lagnaendum fyrir td. Salerni.
Hitakostnaður eininga er sameiginlegur og skiptist hlutfallslega eftir eignarhluta í samræmi við eignaskiptasamning.
RaflagnirRaflagnir eru utanáliggjandi og sýnilegar, greinatafla verður uppsett með 3-fasa rafmagni og einn uppsettur 3-fasa rafmagnstengill þar við hlið. Ljós í lofti, rafmagnstengill í lofti fyrir hurðaopnara (öxuldrifinn hurðaopnari fylgir), ljósarofi og rafmangstengill við hurð. Einnig verður útilýsing uppsett og tengd við sólúr. Sér mælir er fyrir hverja einingu, staðsettur í inntaksrými hússins.
Tvö aðgangsstýrð hlið uppsett af byggingaraðila, öryggismyndavélakerfi verður einnig uppsett og sett í umsjá húsfélags sem mun mæta mánaðarlegum kostnaði með húsgjöldum.
InternetLagt inn í hvert bil fyrir háhraða interneti.
Iðnaðarhurð & gönguhurðIðnaðarhurð er 3,5 m á breidd og 3,2 m á hæð með gluggaflekum, öxuldrifinn bílskúrsmótor, frá Wisniowski. Hurðin er í tæringarflokki C4 að utan, C2 að innan.,
Gönguhurð og gluggarÁl gönguhurð og gluggar eru úr efstu hillu frá Raeynars. Gluggi fyrir ofan gönguhurð ásamt stórum gluggum ofan við bílskúrshurð með stórum opnanlegum fögum sem gætu nýst sem flóttaleið.
Endabil eru aukalega með glugga með opnanlegu fagi á gafli hússins að ofan og neðan.
Bílastæði Fjöldi bílastæða verður á lóð og eru þau í sameign allra, bílaplan hvers matshluta verður malbikað samhliða framkvæmdum þess matshluta.
Lóð Lóðin verður afgirt við byggingu fyrsta matshluta með tveimur aðgangsstýrðum aðalhliðum. Skipulagssvæðið við Kapelluhraun 2.áfanga er innan varúðarsvæðis VA1 frá álverinu í Straumsvík og eru þar takmarkanir á notkun bygginga.
Framkvæmdir eftir afhendinguNokkrir matshlutar verða á lóðinni og munu þeir verða byggðir samtímis eða hver á eftir öðrum. Framkvæmdir á öðrum matshlutum gætu staðið yfir eftir afhendingu einstakra bila. Mun byggingaraðili reyna að haga svæði í kringum þann matshluta á þann hátt að eigendur verði fyrir sem minnstum truflunum.
Allt myndefni birt með fyrirvara, það á að endurspegla endanlegt útlit eins og hægt er, einstaka atriði og útfærslur geta þó breyst. – byggingarnefndarteikningar gilda.Allar nánari upplýsingar veitir:
Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.