Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna eignina Kvistavellir 70, 221 Hafnarfjörður
Við bjóðum í einkasölu fallega og vel hannaða eign við Kvistavelli 70 þar sem gæði, þægindi og fjölskylduvænt umhverfi fara fullkomlega saman
Eignin státar af björtu og opnu alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda hlýlegt samverurými með mikilli lofthæð og góðri birtu.
Vel skipulagt og glæsilegt fjölskylduhús á einum eftirsóttasta stað á Völlunum í Hafnarfirði.
Viðhaldslétt 156 fm 5 herbergja raðhús (4/5 svefnherbergi) með innbyggðum bílskúr. sem telur 24m2 telur samtals 180m2
Húsið eruá einni hæð og fullbúið með frágenginni lóð og timburverönd og steyptri innkeyrslu.
Ca 45fm afgirtur pallur með heitum potti.
free@home rafkerfi í húsinu og einning fylgir handbók og viðhaldsleiðbeiningar með húsinu.
Skipting eignarinnar: Forstofa, stofa, borðstofa, eldhús, fjögur svefnherbergi, 2 baðherbergi, bílskúr og geymsla.
Eldhúsið er smekklega hannað með góðu vinnuplássi og rúmgóðri eyju sem hentar jafnt til daglegrar notkunar sem og þegar gesti ber að garði.
Frá stofu er útgengt á skjólgóðan 45fm sólpall með heitum potti sem býður upp á frábæra aðstöðu til útiveru og fjölskyldusamveru.
Svefnherbergin eru 4 rúmgóð og björt með góðu skápaplássi.
Hjónaherbergi er með fataherbergi sem nýtt er í dag sem barnaherbergi.
Geymsla er nýtt sem 5 herbergi í dag útgengt er úr þvi á bakpall.
2 góð baðherbergið eru glæsilega frágengin með vönduðum innréttingum.
Þvottahús er innan eignar og bílskúr inngengur úr forstofu sem eykur þægindi til muna.
Kvistavellir eru eitt vinsælasta hverfi Hafnarfjarðar þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttasvæði, verslanir, þjónustu og fallegar göngu- og hjólaleiðir. Hverfið er einstaklega fjölskylduvænt og hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár.
Helstu kostir Kvistavalla 70
Glæsileg og vel skipulögð fjölskyldueign, bjart og opið alrými.
Rúmgott eldhús með góðu vinnuplássi.
Bílskúr og góð geymsluaðstaða.
Fjölskylduvænt og eftirsótt hverfi, Stutt í skóla, leikskóla, þjónustu og útivist.
Þetta er eign fyrir þá sem vilja sameina nútímalegan lífsstíl, vandaðan frágang og frábæra staðsetningu í einu vinsælasta íbúðahverfi Hafnarfjarðar.
Húsin eru fjögur 156 m 2 raðhús á einni hæð við Kvistavelli 66-72 í Hafnarfirði. Bílastæði er fyrir 2 bifreiðar við hvert hús. Útveggir eru klæddir með láréttum álskífum í brúnleitum lit á þrjár hliðar en hluti framhliðar er klæddur með lóðréttri harðviðarklæðningu. Veggir eru einangraðir með steinull. Innveggir eru klæddir með spónaplötum og tvöfaldri gifsi. Innveggir í votrýmum eru klæddir með sementsplötum (aquapanel eða viroc) plötum. Gluggar eru úr mahóní með tvöföldu K-gleri og állistum að utan í dökkgráum lit RAL 7016. Útihurðir eru úr mahóní. Botnplata og sökkull eru steypt og einangruð með plasteinangrun. Þak er byggt upp með sperrum og stálbitum og er hátt til lofts í húsunum. Bílaplan er steypt með snjóbræðslu. Sólpallur og garður frágenginn
Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.