Fasteignaleitin
Skráð 29. júlí 2026

Brekkubær 42

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
277.3 m2
9 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
179.900.000 kr.
Fermetraverð
648.756 kr./m2
Fasteignamat
135.700.000 kr.
Brunabótamat
133.670.000 kr.
HJ
Helgi Jóhannes Jónsson
Fasteignasali
Byggt 1980
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Hleðslustöð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2045762
Landnúmer
111272
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar
Raflagnir
Endurnýjað
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
svalir og verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Fasteignasalan TORG kynnir : 
Gullfallegt og mikið endurnýjað 277,3fm raðhús að meðtöldum 22,9fm bílskúr á mjög skjólsælum stað neðst við Fylkisvöllinn. Húsið er mjög vel skipulagt með rúmgóðri þriggja herbergja íbúð í kjallara upplögð til útleigu. Húsið var allt tekið í gegn og endurnýjað 2007. Rut Káradóttir teiknaði breytingarnar. Aðalíbúð skiptist í forstofu, wc, eldhús, stofu, borðstofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Neðri hæð skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús/búr og geymslu. Útgengt út á stóra suður verönd. Eignin getur verið laus við kaupsamning. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is


NÁNARI LÝSING : 
Lýsing aðalhæðar:
Forstofa: björt og rúmgóð með stórum fataskápum og flísum á gólfi. 
Gestasnyrting: flísalögð í hólf og gólf, upphengt salerni.
Eldhús: rúmgott, vandaðar sérsmíðaðar innréttingar, gas- og spanhelluborð og gufugleypir. Granítsteinn er á eldhúsborðum. Aukaofn í eldhúsi, (comb. Örb/ofn/airfryer), kvörn í eldhúsvaski, uppþvottavél, gólfhiti, flísar eru á gólfi og góður borðkrókur með föstu borði og bekkjum við glugga fylgja með.
Borðstofa: rúmgóð og með útgengi á skjólgóðar svalir með útsýni til suðurs.
Stofa: er parketlögð, björt og  með vönduðum arni.
Hiti er í öllum gólfum aðalhæðar.

Lýsing efri hæðar:
Gengið er um fallegan teppalagðan stiga á efri hæð.
Sjónvarpshol: rúmgott, teppalagt og með aukinni lofthæð.
Baðherbergi: er rúmgott og flísalagt í hólf og gólf, sturta með glerlokun, baðkar, sérsmíðaðar innréttingar og vönduð tæki. Gluggi. 
Hjónaherbergi: parketlagt. Innaf  hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi með sérsmíðuðum innréttingum. Yfir fataherbergi er geymsluloft.
Þrjú svefnherbergi:  eitt parketlagt og tvö með dúk á gólfi. Tvö eru rúmgóð.
Þvottaherbergi: flísar á gólfi og góðar hvítar innréttingar.

Lýsing neðri hæðar:
Gengið er niður fallegan teppalagðan stiga í kjallara. Bæði sér inngangur og innangengt. Köld útigeymsla er við inngang í kjallara.
Forstofa: flísalögð.
Gangur: parketlagður.
Herbergi : með parketi á gólfi. Herbergið er tvöfalt og upplagt að nota innra rýmið sem fataherbergi eða skrifstofu.
Baðherbergi: flíslagt í hólf og gólf, sturta og innrétting.
Geymsla: undir stiga, dúkur á gólfi.
Stofa: með parketi á gólfi, opin við eldhúsrými að hluta. 
Eldhús: rúmgott og með fallegri hvítri innréttingu, góð borðaðstaða. Uppþvottavél og ísskápur fylga með parketi á gólfi. Útgengt út á suður verönd og þaðan út í garð.
Búr: innaf eldhúsi, dúkur á gólfi og hillur.

Bílskúrinn er með hita, rafmagni og vatni. Nýlega var skipt um bílskúrshurð ásamt hurðaopnara. Hleðslustöð er í bílskúr. Sér merkt bílstæði fylgir eignini.

Árið 2007 voru tvær efri hæðir hússins nánast algjörlega endurnýjaðar. Rut Káradóttir teiknaði breytingarnar. Beyki ehf sá um alla sérsmíði á innréttingum og skápum í eldhúsi, forstofu, holi, baðherbergi, snyrtingu miðhæðar, sjónvarpsholi og arni í stofu. Raftæki í eldhúsi ýmist Miele eða Siemens. Bæði spanhellur og gas.  
Kvörn í eldhúsvaski (General Electric). Einnig voru settir nýir skápar í fataherbergi, tvö barnaherbergi og þvottahús. Skipt var um allar innihurðir. Allt parket er frá  
Parka ehf og flísar eru vandaðar ítalskar flísar frá Agli Árnasyni. Blöndunartæki, wc og baðkar eru frá Ísleifi Jónssyni (Philip Stark by Duravit). Neysluvatnslagnir voru endurnýjaðar, ásamt mestu af pípulögnum,  hitakerfi sett í allt gólf miðhæðar og á baðherbergi efri hæðar. 
2020 : Baðherbergi á jarðhæð endurnýað og flísalagt ásamt boðplötu í eldhúsi og helluborði. 2021 : Þak hússins háþrýstiþvegið og málað. 2022 : Múviðgerðir og húsið málað að utan. 2023 : skipt um þakkant og rennur á suðurhlið. 2024 : skipt um parket á jarðhæð. 2024 : Neysluvatn á jarðhæð endurnýjað. 2026 : Neysluvatnsforhitari endurnýjaður. 

Húsið er mjög vel staðsett við Fylkisvöllinn, Leik- og grunnskóli í göngufæri ásamt aðgengi í matvörubúð og strætó.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/01/201446.200.000 kr.60.000.000 kr.277.3 m2216.372 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1984
22.9 m2
Fasteignanúmer
2045762
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
28
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.320.000 kr.

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kóngsbakki 7
Skoða eignina Kóngsbakki 7
Kóngsbakki 7
109 Reykjavík
96.1 m2
Fjölbýlishús
413
655 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Æsufell 2
Skoða eignina Æsufell 2
Æsufell 2
111 Reykjavík
92 m2
Fjölbýlishús
413
701 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Skoða eignina Ferjuvað 3
Bílastæði
Opið hús:06. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Ferjuvað 3
Ferjuvað 3
110 Reykjavík
100.7 m2
Fjölbýlishús
413
893 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 42
Skoða eignina Hraunbær 42
Hraunbær 42
110 Reykjavík
89.5 m2
Fjölbýlishús
312
703 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin