Nýtt, fallegt, 4ra herbergja endaraðhús að Elsugötu 7, Þorlákshöfn. Húsið er á frábærum stað í nýju, fallegu hverfi sem er í mikilli uppbyggingu í Þorlákshöfn, og er eignin staðset mjög nálægt grunnskólanum.
Húsið er skemmtilega skipulagt, klætt vönduðum flötum álplötum sem á eftir að setja svip á eignina þar sem hún er mun vandaðari en báran. Einnig verður bílaplan hellulagt með ílögn fyrir hita í plani sem liggur inn í bílskúr. Húsið snýr skemmtilega eða með garð til suðvesturs. Garðurinn verður tyrfður.
Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is
Skipulag eignar: Anddyri, gangur, þrjú svefnherbergi, í opnu alrými er stofa / borðstofa og eldhús, baðherbergi/þvottahús og Bílskúr.
* Eignin afhendist á byggingarstigi 3 - Tilbúin til innréttinga.
* Afhendingartími er samkomulag.
* Möguleiki er að fá húsið lengra komið eftir samkomulagi.
Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is
Skipulag eignar: Anddyri, gangur, þrjú svefnherbergi, í opnu alrými er stofa / borðstofa og eldhús, baðherbergi/þvottahús og Bílskúr.
Skilalýsing á byggingarstigi 3 – Tilbúin til innréttinga: Nánari lýsing hjá fasteignasölu.
Útveggir
Klætt vönduðum flötum álplötum sem á eftir að setja svip á eignina
Þak.
Þak er hefðbundið niðurtekið kraftsperruþak með 18° þakhalla. Ofan á sperrur kemur borðaklæðning þakpappi og að lokum bárujárn, svart að lit. Þak er einangrað með 200mm þakull.
Þakkantar og vindskeiðar
Þakkanntar og vindskeiðar eru úr timbri svartar að lit, undirklæðningin er einnig úr timbri í svartar lit. Rennur eru innfeldar í þakkant og eru úr stál-Svartur, tengdar frárennslislögnum í púkk á lóð. Niðurfallsrör eru 70mm úr sama efni.
Gluggar og útihurðir
Gluggar og hurðir eru úr ál/timbri hvítir að innan, svartir að utan að lit, gler í gluggum er tvöfalt K-einangrunargler. Tvöfalt samlímt öryggisgler er í gólfsíðum gluggum/hurðum, sem og öllum gluggum/hurðum sem eru allt að 600mm frá gólfi. Allar útihurðir (hurðarflekar) eru 900 mm að breidd.
Aðgengi og lóð
Garður er þökulagður að mestu. Bílaplan hellulagt. Forsteypt sorpskýli fyrir þrjár tunnur. Fyrirkomulag sólpalla og skjólveggja ákvarðast og útfærist af endanlegum kaupendum íbúða. Lagnaleiðir fyrir ljós.
Frágangur innanhúss:
Kraftsperrur eru í húsinu og öll loft niðurtekin.
inntök komin inn og greidd
hitalagnir steypt í plötu eru öllum gólfum og verður tengigrind fyrir hita frágengin. án stýringa
Rafmagn verður frágengið í töflu og tenglar og rofar komnir.
Allir milliveggir verða komnir og verða klæddir með með 2x gifsi hvoru megin eða krossvið og gifs beggja vegna, og loft er klætt með gifsi.
Allir veggir sandsparslaðir og fullmálaðir í ljósum lit.
Loft verða með loftadúk, fyrir utan baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Gólf slípað og yfirfarið.
Vatnslagnir komnar að aftöppunarstað.
Inntök kominn inn og greidd.
Annað
· Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd.
· Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald þegar það er lagt á við endanlegt brunabótamat.
· Allar teikningar liggja fyrir þ.e. aðalteikningar, sökkulteikningar, burðarvirkisteikningar, glugga- og hurðateikningar, lagnateikningar og rafmagnsteikningar.
Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is