Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu heila húseign með þremur íbúðum við Óðinsgötu 8a í Reykjavík.
Eignin er á tveimur fastanúmerum, en auk þess er kjallari sem innréttaður hefur verið sem sér íbúð.
1. hæð hússins er skráð 50,6 fermetrar að stærð, rishæð hússins er skráð 46,0 fermetrar að stærð og kjallari, sem er óskráður, er um 50,0 fermetrar að stærð.
Eignin var nánast öll endurnýjuð árið 2025:
- Skipt um klóaklagnir undir húsi og að lóðarmörkum og skipt um brunn í lóð
- Skipt um raflagnir og töflur og nýtt rafmagnsinntak
- Skipt um ofnalagnir og lagðar gólfhitalagnir í kjallara og á 1. hæð
- Skipt um neysluvatnslagnir og ný inntök fyrir heitt og kalt vatn
- Þak og kvistir endurnýjaðir, sett fallegt þakefni á húsið, þakrennur og niðurföll
- Gler og gluggar endurnýjaðir auk útihurða
- Húsið múrviðgert og málað að utan
Hið innra voru kjallari hússins og íbúð á 1. hæð algjörlega endurnýjaðar hið innra:
- Skipulagi breytt
- Gólfefni, innréttingar, baðherbergi og eldhús endurnýjuð
- Ofnar og ofnalagnir á 1. hæð endurnýjað og lagðar gólfhitalagnir í kjallaraLýsing eignar:1. hæð hússins, sem er með sameiginlegum inngengi með rishæð, er 2ja herbergja íbúð, sem er skráð 50,6 fermetrar að stærð.Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi auk sérgeymslu innaf sameiginlegri forstofu á hæðinni.
Ný gegnheil furugólfborð eru á stofu, eldhúsi og svefnherbergi. Ný HTH innrétting er í eldhúsi með Bosch tækjum og innbyggðri Siemens uppþvottavél. Baðherbergi er stórt, bæði með glugga og útgengi á svalir til vesturs. Stór flísalögð sturta með sturtugleri og innbyggðum tækjum í vegg, innrétting, vegghengt wc. og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergið er með innbyggðum fataskápum.
Rishæð hússins, sem er með sameiginlegum inngangi með 1. hæð, er 2ja herbergja íbúð, sem er skráð 46,0 fermetrar að stærð og var endurnýjuð hið innra fyrir rúmlega 10 árum síðan.Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Mikil lofthæð er í mæni í stofu og eldhúsi. Falleg ljós viðarinnrétting er í eldhúsi. Baðherbergi er með glugga, flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc., sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergi er með innbyggðum fataskápum.
Kjallari hússins, sem er ekki skráður inn í fermetratölu eignarinnarr, en er um 50,0 fermetrar að stærð var innréttaður sem íbúð árið 2025.Kjallaragólf var dýpkað og lagðar gólfhitalagnir auk þess sem klóaklagnir undir húsinu voru endurnýjaðar sem og öll inntök í húsið.
Kjallari skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi með glugga. Ný eldhúsinnrétting og tæki, nýtt baðherbergi með baðkari og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gólf öll flísalögð, útveggir allir einangraðir upp á nýtt og múraðir. Lofthæð í kjallara er um 2,25 metrar og kjallarinn er með sérinngangi af lóð.
Húsið er byggt úr holsteini árið 1920 og er í góðu ástandi hið ytra. Allt gler og gluggar auk útihurða var endurnýjað árið 2025 og eru gluggar með þreföldu gleri. Þak var endurnýjað eins og þurfti og klætt með áli auk þess sem skipt var um þakrennur og niðurföll.
Lóðin er 480 fermetrar að stærð, sameiginleg með húsinu nr. 8 við Óðinsgötu og er fullfrágengin. Staðsetning eignarinnar er virkilega góð miðsvæðis í borginni.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is