Fasteignaleitin
Skráð 22. júní 2026

Orkureitur - D1 - 707

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
152.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
188.900.000 kr.
Fermetraverð
1.235.448 kr./m2
7. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
253631520
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Sérmerkt bílastæði í bílageymslu fylgir íbúðinni!
Eignamiðlun og Safír byggingar ehf kynna með stolti nýjar í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Gólfhiti er í öllum íbúðum sem og aukin lofthæð.
SAFÍR20 er fjármögnunarleið sem getur hentað vel til að binda minna eigið fé í húseign, lækka lántöku og greiðslubyrði. Tryggðu þér góða íbúð með skynsamlegri fjárfestingu og lægri greiðslubyrði á mánuði. Sjá nánar inná www.safir20.is


Orkureitur - Grensásvegur 2B-704 , íbúð 07-07 er 4ra herbergja, 152.9 fm íbúð. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði án endurgjalds í 10 ár. 

NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali í síma 899-8815, kari@eignamidlun.is

Smellið hér til að skoða heimasíðuverkefnisins Orkureiturinn.is
**Sækja söluyfirlit**

Orkureitur - Grensásvegur 2B-704 , íbúð 07-07 er 152.9 fm 4ra herbergja íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á einstaklega góðum stað rétt við Laugardalinn. 
Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 152.9 fm með sérgeymslu í kjallara hússins. 
Innréttingaþema er Safír Premíum (900). Val þegar kemur að innréttingum og frágangi. Fimm innréttingaþemu í boði frá Nobilia (Easytouch frontar) og möguleiki á innréttingum frá Leicht (spónlagðar). Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. Vínkælir frá Temptech. Innfelldar innihurðir. Innbyggð Vola blöndunartæki á baðherbergjum. 
Afhending íbúðanna: Íbúðir í D1 eru tilbúnar til afhendingar. Gert er ráð fyrir að íbúðir í D2 verði til afhendingar í júní/júlí 2026. 

Nánar um Orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir

Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027. 

Framtíðarheimili á Orkureitnum
Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“. Jafnframt er stefnt að því að allar íbúðir á reitnum verði Svansvottaðar.

Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.

Nánari upplýsingar gefa löggiltir fasteignasalar Eignamiðlunar:
Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 660-3452, rognvaldur@eignamidlun.is
Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 839-1600, gunnarbergmann@eignamidlun.is
Ólafur H Guðgeirsson löggiltur fasteignasali, sími 663-2508, olafur@eignamidlun.is
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson löggiltur fasteignasali, sími 864-5464, gudlaugur@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álftamýri 32
Efsta hæð
Opið hús:17. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Álftamýri 32
Álftamýri 32
108 Reykjavík
63.7 m2
Fjölbýlishús
312
987 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Lautarvegur 16
Bílskúr
Hleðslustöð
Opið hús:16. ágúst kl 13:00-13:30
Skoða eignina Lautarvegur 16
Lautarvegur 16
108 Reykjavík
229.9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
524
783 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168
Skoða eignina Laugavegur 168
Laugavegur 168
105 Reykjavík
83.7 m2
Fjölbýlishús
312
1074 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Lágseyla 1
Bílskúr
Heitur pottur
Opið hús:10. ágúst kl 16:30-17:00
Skoða eignina Lágseyla 1
Lágseyla 1
260 Reykjanesbær
144.2 m2
Parhús
413
620 þ.kr./m2
89.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin